Svanhvít Inga Tryggvadóttir
Svanhvít Inga Tryggvadóttir, húsfreyja,smurbrauðsdama, bjó í Danmörku, fæddist 13. nóvember 1938 og lést 18. apríl 1996.
Foreldrar hans voru Tryggvi Ingvarsson bóndi, verkamaður, f. 27. janúar 1910 u. Eyjafjöllum, d. 3. maí 1945, og kona hans Arnfríður Jóna Sveinsdóttir húsfreyja, f. 6. maí 1912 í Reykjavík, d. 8. ágúst 1994.
Börn Jónu og Tryggva:
1. Ólafur Tryggvason vélvirki, járnsmiður, f. 21. janúar 1932 í Neðri-Dal u. Eyjafjöllum, d. 9. júní 1995. Hann ólst upp u. Eyjafjöllum.
2. Ingibergur Garðar Tryggvason verkamaður, framkvæmdastjóri, f. 10. febrúar 1933 á Vesturhúsum, d. 13. desember 2013.
3. Guðrún Jóna Tryggvadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 6. desember 1935 í Neðri-Dal. Hún ólst upp hjá Sigurði Einarssyni og Elínu Jónínu Ingvarsdóttur föðursystur sinni í Austur-Búðarhólshjáleigu, (Hólavatni), í A-Landeyjum.
4. Svanhvít Inga Tryggvadóttir, f. 13. nóvember 1938 á Ásum, (Skólavegi 47). Hún bjó í Danmörku, d. 18. apríl 1996.
Börn Jónu og síðari manns hennar Samúels Ingvarssonar:
5. Ásta Gréta Samúelsdóttir fulltrúi, f. 20. janúar 1949 á Rauðafelli.
6. Tryggvi Óskar Samúelsson bifreiðastjóri, f. 16. febrúar 1952 á Rauðafelli.
7. Bjarni Samúelsson bifreiðastjóri, f. 3. ágúst 1956 á Sámsstöðum í Fljótshlíð.
Börn Samúels af fyrra hjónabandi:
1. Jenný Sigríður Samúelsdóttir, f. 23. febrúar 1936 á Stað við Helgafellsbraut 10, d. 21. ágúst 2017. Hún bjó í Gautaborg.
2. Ingibjörg Hulda Samúelsdóttir húsfreyja, f. 30. nóvember 1937 á Jaðri við Vestmannabraut 6, býr í Eyjum.
3. Stúlka, f. 10. júlí 1943 á Bifröst við Bárugötu 11, d. 8. desember 1943.
Þau Ole giftu sig, eignuðust kjörbarn. Þau bjuggu í Danmörku.
I. Maður Svanhvítar Ingu er Ole Olson, af íslenskum ættum, hermaður.
Barn þeirra:
1. Iben Olson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Ásta Gréta.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.