Ásta Gréta Samúelsdóttir
Ásta Gréta Samúelsdóttir, fulltrúi hjá Eimskipum í Rvk fæddist 20. janúar 1949 á Rauðafelli.
Foreldrar hennar Samúel Ingvarsson, sjómaður, verkamaður, bóndi, f. 7. september 1908, d. 15. desember 1993, og síðari kona hans Arnfríður Jóna Sveinsdóttir, húsfreyja, f. 6. maí 1912, d. 8. ágúst 1994.
Börn Jónu og Tryggva:
1. Ólafur Tryggvason vélvirki, járnsmiður, f. 21. janúar 1932 í Neðri-Dal u. Eyjafjöllum, d. 9. júní 1995. Hann ólst upp u. Eyjafjöllum.
2. Ingibergur Garðar Tryggvason verkamaður, framkvæmdastjóri, f. 10. febrúar 1933 á Vesturhúsum, d. 13. desember 2013.
3. Guðrún Jóna Tryggvadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 6. desember 1935 í Neðri-Dal. Hún ólst upp hjá Sigurði Einarssyni og Elínu Jónínu Ingvarsdóttur föðursystur sinni í Austur-Búðarhólshjáleigu, (Hólavatni), í A-Landeyjum.
4. Svanhvít Inga Tryggvadóttir, f. 13. nóvember 1938 á Ásum, (Skólavegi 47). Hún bjó í Danmörku, d. 18. apríl 1996.
Börn Jónu og síðari manns hennar Samúels Ingvarssonar:
5. Ásta Gréta Samúelsdóttir fulltrúi, f. 20. janúar 1949 á Rauðafelli.
6. Tryggvi Óskar Samúelsson bifreiðastjóri, f. 16. febrúar 1952 á Rauðafelli.
7. Bjarni Samúelsson bifreiðastjóri, f. 3. ágúst 1956 á Sámsstöðum í Fljótshlíð.
Börn Samúels af fyrra hjónabandi:
1. Jenný Sigríður Samúelsdóttir, f. 23. febrúar 1936 á Stað við Helgafellsbraut 10, d. 21. ágúst 2017. Hún bjó í Gautaborg.
2. Ingibjörg Hulda Samúelsdóttir húsfreyja, f. 30. nóvember 1937 á Jaðri við Vestmannabraut 6, býr í Eyjum.
3. Stúlka, f. 10. júlí 1943 á Bifröst við Bárugötu 11, d. 8. desember 1943.
Þau Þórður giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Þau Birgir Óttar giftu sig, hafa ekki eignast börn saman, en hann á þrjú börn frá fyrra sambandi.
I. Fyrrum maður Ástu Grétu er Þórður Sigurðsson, bifreiðastjóri á Selfossi, f. 16. apríl 1949. Foreldrar hans Sigurður Hanneson, f. 4. apríl 1916, d. 11. desember 1981, og Hólmfríður Þórðardóttir, f. 15. júní 1922, d. 6. mars 2003.
Börn þeirra:
1. Sigurður Þórðarson, f. 27. mars 1968..
2. Samúel Þórðarson, f. 30. júní 1970.
II. Maður Ástu Grétu er Birgir Óttar Ríkharðsson vélvirki, f. 4. október 1950, d. 19. mars 2024. Foreldrar hans Richard J. Awe, frá Bandaríkjunum, f. 16. júlí 1921, d. 26. mars 1984, og Guðrún Lilja Dagnýsdóttir, f. 6. febrúar 1928, d. 26. júní 2006.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Ásta Gréta.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.