Soffía Guðfinna Runólfsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Soffía Guðfinna Runólfsdóttir húsfreyja í Eyjum og Keflavík, fæddist 21. apríl 1890 í Hörglandskoti á Síðu og lést 4. október 1982.
Foreldrar hennar voru Guðfinna Björnsdóttir húsfreyja í Hörglandskoti á Síðu í V-Skaftafellssýslu, síðar hjá Runólfi syni sínum og fjölskyldu á Búðarfelli, f. 1. júní 1848 á Rofunum í Mýrdal, d. 11. maí 1935 í Eyjum og maður hennar Runólfur Sigurðsson bóndi, f. 24. september 1843 í Nýjabæ í Landbroti, d. 30. maí 1906 í Skálmabæjarhraunum í Álftaveri.

Systkini Soffíu Guðfinnu voru:
1. Guðfinna Runólfsdóttir húsfreyja á Raufarfelli u. Eyjafjöllum, f. 26. janúar 1883, d. 10. september 1950.
2. Björn Runólfsson, f. 31. ágúst 1887, d. 2. september 1887.
3. Gróa, f. 12. maí 1891, d. 18. maí 1891.
4. Runólfur Runólfsson verkamaður á Búðarfelli, f. 29. maí 1892, d. 16. janúar 1979.

Soffía Guðfinna var með foreldrum sínum í Hörglandskoti til 1895, tökubarn þar 1895-1896, með foreldrum sínum á Prestbakka 1896-1907, vinnukona í Prestbakkakoti 1907-1909, vinnukona í Norður-Vík í Mýrdal 1909-1912, á Prestbakka 1912-1914, fór þá að Raufarfelli u. Eyjafjöllum, var húsfreyja þar 1915-1925.
Þau Hjörleifur fluttust til Eyja 1926 með börn sín önnur en Magnús og Gísla Ágúst, sem voru tökubörn á Raufarfelli í lok árs 1926. Þau bjuggu fyrst á Búðarfelli hjá Runólfi bróður hennar, 1930 bjuggu þau á Breiðabliki, í Héðinshöfða 1934 og síðar á Brattlandi, en fluttust til Keflavíkur 1945.

I. Maður hennar, (4. júlí 1915), var Hjörleifur Guðjónsson bústjóri og bóndi á Raufarfelli, síðar verkamaður í Eyjum og Keflavík, f. 21. maí 1893, f. 24. janúar 1973.
Börn þeirra voru
1. Gróa Hjörleifsdóttir húsfreyja, síðar í Keflavík, f. 31. júlí 1915, d. 17. desember 1993, gift Magnúsi Ísleifssyni.
2. Guðbjörg Hjörleifsdóttir, f. 10. apríl 1918.
3. Guðjón Kristinn Hjörleifsson múrari, síðar í Keflavík, f. 29. júní 1919, d. 9. nóvember 1965.
4. Magnús Hjörleifsson, f. 13. júní 1921, d. 3. september 1962. Kona hans Guðbjörg Einarsdóttir.
5. Gísli Ágúst Hjörleifsson, f. 13. febrúar 1923, d. 17. september 1967. Kona hans Ása Soffía Friðriksdóttir.
6. Ingibjörg Hjörleifsdóttir húsfreyja, síðast búsett í Njarðvíkum, f. 5. ágúst 1924, d. 8. febrúar 2005.
7. Ingi Guðmann Hjörleifsson múrari og húsasmiður, síðar í Keflavík , f. 11. september 1927 á Breiðabliki, d. 15. febrúar 2011.
8. Andvana stúlka, f. 7. apríl 1929 á Minna-Núpi.

II. Barnsfaðir Soffíu Guðfinnu var Runólfur Jónsson vinnumaður, lausamaður, f. 3. september 1867, d. 12. júní 1943.
Barn þeirra var
7. Rósa Runólfsdóttir húsfreyja í Hólatungu, f. 9. nóvember 1909, d. 25. apríl 1948, kona Stefáns Guðjónssonar.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.