Ingi Guðmann Hjörleifsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ingi Guðmann Hjörleifsson.

Ingi Guðmann Hjörleifsson frá Breiðabliki, múrari, húsasmiður fæddist þar 11. september 1927 og lést 15. febrúar 2011.
Foreldrar hans voru Hjörleifur Guðjónsson bústjóri, síðar verkamaður í Eyjum og Keflavík, f. 20. maí 1893 í Selkoti u. Eyjafjöllum, d. 24. janúar 1973, og kona hans Soffía Guðfinna Runólfsdóttir húsfreyja, f. 21. apríl 1890 í Hörglandskoti í V-Skaft., d. 4. október 1982.

Börn Soffíu og Hjörleifs:
1. Gróa Hjörleifsdóttir húsfreyja, síðar í Keflavík, f. 31. júlí 1915, d. 17. desember 1993, gift Magnúsi Ísleifssyni.
2. Guðbjörg Hjörleifsdóttir, f. 10. apríl 1918, d. 3. nóvember 1921.
3. Guðjón Kristinn Hjörleifsson múrari, síðar í Keflavík, f. 29. júní 1919, d. 9. nóvember 1965. Kona hans Sigríður Reykdal Þorvaldsdóttir.
4. Magnús Hjörleifsson, f. 13. júní 1921, d. 3. september 1962. Kona hans Guðbjörg Einarsdóttir.
5. Gísli Ágúst Hjörleifsson járnsmiður, f. 13. febrúar 1923, d. 17. september 1967. Kona hans Ása Soffía Friðriksdóttir.
6. Ingibjörg Hjörleifsdóttir húsfreyja, síðast búsett í Njarðvíkum, f. 5. ágúst 1924, d. 8. febrúar 2005. Maður hennar Aðalsteinn Guðmundsson.
7. Ingi Guðmann Hjörleifsson múrari og húsasmiður, síðar í Keflavík , f. 11. september 1927 á Breiðabliki, d. 15. febrúar 2011. Kona hans Kristrún Jóhanna Pétursdóttir.
8. Andvana stúlka, f. 7. apríl 1929 á Minna-Núpi.
Barn Soffíu:
9. Rósa Runólfsdóttir húsfreyja í Hólatungu, f. 9. nóvember 1909, d. 25. apríl 1948, kona Stefáns Guðjónssonar.

Ingi var með foreldrum sínum í æsku, á Breiðabliki 1930, í Héðinshöfða 1934 og síðar Brattlandi til 1945, en fluttist þá með þeim til Keflavíkur.
Hann lærði múrverk hjá Guðjóni bróður sínum, varð sveinn í húsamíði 1983 og vann við þær iðngreinar, vann fyrir varnarliðið frá 1967-starfsloka 1997.
Þau Kristrún Jóhanna giftu sig 1953, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu við Austurgötu í Keflavík.
Kristrún Jóhanna lést 2008 og Ingi Guðmann 2011.

I. Kona Inga Guðmanns, (26. september 1953), var Kristrún Jóhanna Pétursdóttir húsfreyja, f. 22. mars 1927, d. 9. nóvember 2008. Foreldrar hennar voru Pétur Wihelm Jóhannsson, f. 3. nóvember 1893, d. 25. febrúar 986 og Sóley Sölvadóttir, f. 30. apríl 1899, d. 10. desember 1928.
Fósturforeldrar Kristrúnar voru Lárus Kjartansson, f. 14. apríl 1891, d. 12. janúar 1973 og Þorbjörg Jóhannsdóttir, f. 9. desember 1892, d. 10. mars 1978.
Börn Kristrúnar og Inga:
1. Hjörleifur Guðfinnur Ingason véliðnfræðingur, f. 16. febrúar 1954.
2. Ingólfur Kristmann Ingason, f. 18. júlí 1955, d. 3. september 1969.
3. Þorbjörg Sóley Ingadóttir hjúkrunarfræðingur, f. 30. september 1956. Maður hennar Nikulás Úlfar Másson.
4. Guðný Lára Ingadóttir ritari, f. 14. júlí 1967. Sambúðarmaður hennar Haukur Hólm.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.