Sigurleif Ólafía Björnsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurleif Ólafía Björnsdóttir frá Minna-Núpi, húsfreyja fæddist 7. september 1923 og lést 26. nóvember 1956.
Foreldrar hennar voru Björn Jakobsson verkamaður, bóndi, sjómaður, netagerðarmaður, húsasmiður, póstur, f. 29. ágúst 1893 á Vatnsskarðshólum í Mýrdal, d. 2. febrúar 1974, og kona hans Steinunn Jónsdóttir húsfreyja frá Syðri-Rotum u. V-Eyjafjöllum, f. 28. júní 1884, d. 22. mars 1968.

Börn Steinunnar og Björns:
1. Sveinn Alexander Björnsson sjómaður, f. 14. júlí 1916, drukknaði af v.b. Gottu fyrir Norðurlandi 16. september 1936.
2. Jakobína Björnsdóttir húsfreyja, f. 5. febrúar 1918, d. 21. september 1946.
3. Andvana barn, f. 7. mars 1919.
4. Sveinbarn f. 7. mars 1919, d. sama dag.
5. Guðrún Sigríður Björnsdóttir húsfreyja á Hálsi, f. 7. febrúar 1920 á Minna-Núpi, d. 8. október 2011.
6. Sæmundur Kári Björnsson, f. 6. janúar 1921 á Minna-Núpi, d. 21. júlí 1923.
7. Guðríður Sigurbjörg Björnsdóttir, f. 12. desember 1921 á Minna-Núpi, d. 25. desember 1922.
8. Sigurleif Ólafía Björnsdóttir húsfreyja, f. 7. september 1923 á Minna-Núpi, d. 26. nóvember 1956.

Sigurleif Ólafía var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Guðfinnur giftu sig 1948 og byggðu Brimhólabraut 8. Þau eignuðust fjögur börn, þau síðustu voru tvíburar 1956. Sigurleif lést eftir fæðingu þeirra.

I. Maður Sigurleifar Ólafíu, (30. desember 1948), var Guðfinnur Þorgeirsson frá Skel, sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 20. nóvember 1926, d. 22. mars 2012.
Börn þeirra:
1. Jakobína Guðfinnsdóttir húsfreyja, skólaliði, f. 6. mars 1947.
2. Hafsteinn Grétar Guðfinnsson lífeðlisfræðingur, f. 5. ágúst 1950.
3. Sigurleif Guðfinnsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 18. nóvember 1956.
4. Guðfinna Guðfinnsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, ráðgjafi, f. 18. nóvember 1956.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.