Sigurður Ólafsson (Arnardrangi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Óskar Ólafsson frá Arnardrangi, skrifstofumaður, verslunarmaður fæddist 2. júní 1913 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl. og lést 16. nóvember 1955.
Foreldrar hans voru Ólafur Ó. Lárusson læknir, f. 1. september 1884 á Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd, Gull., d. 6. júní 1952 í Eyjum, og kona hans Sylvía Níelsína Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 13. ágúst 1883 á Háeyri á Eyrarbakka, d. 22. október 1957.

Börn Sylvíu og Ólafs:
1. Jóhanna Gunnhildur Ólafsdóttir saumakona, f. 24. mars 1907 í Reykjavík, d. 31. júlí 1966. Barnsfaðir hennar Sveinn Benediktsson.
2. Magnús Óskar Ólafsson stórkaupmaður í Reykjavík, f. 29. apríl 1908 í Reykjavík, d. 3. september 1968. Kona hans Guðrún Ólafía Karlsdóttir.
3. Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 30. október 1909 í Reykjavík, d. 13. ágúst 1985. Maður hennar Örn Hauksteinn Matthíasson.
4. Lárus Guðmundur Óskar Ólafsson lyfjafræðingur og apótekari á Selfossi, f. 22. október 1911 á Eiðum í Eiðaþinghá, d. 10. apríl 1987. Kona hans, (skildu), Ásdís Lárusdóttir.
5. Sigurður Óskar Ólafsson verslunarmaður í Reykjavík, f. 2. júní 1913 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 16. nóvember 1955. Fyrrum kona hans Einarína Pálína Árnadóttir. Kona hans Aðalbjörg Vilhjálmsdóttir.
6. Guðmundur Óskar Ólafsson bókari í Reykjavík, f. 14. júní 1914 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 18. mars 1981. Kona hans Olga Hallgrímsdóttir.
7. Jakob Óskar Ólafsson skrifstofustjóri í Eyjum, síðar í Reykjavík, f. 18. ágúst 1915 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 18. febrúar 1992. Kona hans Jóhanna María Bjarnasen.
8. Axel Óskar Ólafsson héraðsdómslögmaður, innheimtustjóri í Reykjavík, f. 21. janúar 1917 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 8. ágúst 1980. Kona hans Þorbjörg Andrésdóttir.
9. Sigríður Sólveig Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík og Stykkishólmi, f. 7. apríl 1918 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 14. desember 1945. Maður hennar Kjartan Jónsson.
10. Halldór Óskar Ólafsson loftsiglingafræðingur, flugleiðsögumaður í Reykjavík, f. 19. nóvember 1923 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl. Kona hans Helena Svanhvít Sigurðardóttir.

Sigurður Óskar var með foreldrum sínum í æsku, á Brekku í Fljótsdal, flutti með þeim til Eyja 1925.
Hann var skrifstofumaður í Eyjum, síðar á Akureyri.
Þau Pálína giftu sig 1940, eignuðust eitt barn, bjuggu í Berjanesi 1940. Þau skildu.
Sigurður fluttist til Akureyrar. Þau Aðalbjörg giftu sig 1947 eignuðust eitt barn, bjuggu á Eyrarlandsvegi 31.
Aðalbjörg lést 1951 og Sigurður Óskar 1955.

Sigurður Óskar var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans, (13. janúar 1940), var Einarína Pálína Árnadóttir frá Burstafelli, húsfreyja, f. 27. maí 1914 á Stuðlum í Norðfirði, d. 19. desember 1993 í Reykjavík.
Barn þeirra:
1. Erla Lísa Sigurðardóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 13. janúar 1939 í Reykjavík, d. 23. júní 2013. Fyrrum maður hennar Hafþór Svavarsson. Barnsfaðir hennar Einar Logi Einarsson. Maður Erlu Lísu Óskar Steindórsson.

II. Síðari kona Sigurðar Óskars, (8. nóvember 1947 á Akureyri), var Aðalbjörg Vilhjálmsdóttir frá Akureyri, húsfreyja, f. 16. apríl 1919, d. 28. maí 1951. Foreldrar hennar voru Vilhjálmur Júlíusson bifreiðastjóri á Akureyri, f. 28. janúar 1880 á Kotá í Eyjafirði, d. 30. desember 1971, og kona hans Elín Sveinbjarnardóttir húsfreyja, f. 14. október 1880 á Stokkahlöðum í Eyjafirði, d. 23. júlí 1960.
Barn þeirra:
2. Sveinbjörn Óskar Sigurðsson skrifstofumaður á Akureyri, f. þar 9. mars 1948, d. 4. apríl 2017, ókvæntur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.