Magnús Ólafsson (Arnardrangi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Óskar Ólafsson frá Arnardrangi, stórkaupmaður í Reykjavík fæddist 29. apríl 1908 í Reykjavík og lést 3. september 1968.
Foreldrar hans voru Ólafur Ó. Lárusson læknir, f. 1. september 1884 á Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd, Gull., d. 6. júní 1952 í Eyjum, og kona hans Sylvía Níelsína Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 13. ágúst 1883 á Háeyri á Eyrarbakka, d. 22. október 1957.

Börn Sylvíu og Ólafs:
1. Jóhanna Gunnhildur Ólafsdóttir saumakona, f. 24. mars 1907 í Reykjavík, d. 31. júlí 1966. Barnsfaðir hennar Sveinn Benediktsson.
2. Magnús Óskar Ólafsson stórkaupmaður í Reykjavík, f. 29. apríl 1908 í Reykjavík, d. 3. september 1968. Kona hans Guðrún Ólafía Karlsdóttir.
3. Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 30. október 1909 í Reykjavík, d. 13. ágúst 1985. Maður hennar Örn Hauksteinn Matthíasson.
4. Lárus Guðmundur Óskar Ólafsson lyfjafræðingur og apótekari á Selfossi, f. 22. október 1911 á Eiðum í Eiðaþinghá, d. 10. apríl 1987. Kona hans, (skildu), Ásdís Lárusdóttir.
5. Sigurður Óskar Ólafsson verslunarmaður í Reykjavík, f. 2. júní 1913 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 16. nóvember 1955. Fyrrum kona hans Einarína Pálína Árnadóttir. Kona hans Aðalbjörg Vilhjálmsdóttir.
6. Guðmundur Óskar Ólafsson bókari í Reykjavík, f. 14. júní 1914 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 18. mars 1981. Kona hans Olga Hallgrímsdóttir.
7. Jakob Óskar Ólafsson skrifstofustjóri í Eyjum, síðar í Reykjavík, f. 18. ágúst 1915 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 18. febrúar 1992. Kona hans Jóhanna María Bjarnasen.
8. Axel Óskar Ólafsson héraðsdómslögmaður, innheimtustjóri í Reykjavík, f. 21. janúar 1917 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 8. ágúst 1980. Kona hans Þorbjörg Andrésdóttir.
9. Sigríður Sólveig Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík og Stykkishólmi, f. 7. apríl 1918 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 14. desember 1945. Maður hennar Kjartan Jónsson.
10. Halldór Óskar Ólafsson loftsiglingafræðingur, flugleiðsögumaður í Reykjavík, f. 19. nóvember 1923 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl. Kona hans Helena Svanhvít Sigurðardóttir.

Magnús Óskar var með foreldrum sínum í æsku, í Reykjavík, á Eiðum í Eiðaþinghá, á Brekku í Fljótsdal og fluttist með þeim til Eyja 1925.
Hann var verslunarmaður í Eyjum 1936 og 1940, kaupmaður 1945, síðar kaupsýslumaður í Reykjavík. Hann flutti til landsins fiskveiðiskip, vélar og fleira tengt útgerð.
Þau Guðrún Ólafía giftu sig 1936, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Fífilgötu 2 í fyrstu, síðar á Ásavegi 7 og á Faxastíg 1 1945. Þau fluttu til Reykjavíkur 1947, bjuggu á Víðimel og síðar í Kvisthaga.
Magnús Óskar lést 1968 og Guðrún Ólafía 2009, 102 ára.

I. Kona Magnúsar Óskars, (6. júní 1936, var Guðrún Ólafía Karlsdóttir húsfreyja, kaupmaður, f. 20. ágúst 1907 í Mýrarhúsum á Seltjarnarnesi, d. 18. nóvember 2009.
Börn þeirra:
1. Sigríður Hrefna Magnúsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 20. desember 1936, d. 5. ágúst 2015. Maður hennar Pétur Björnsson.
2. Ólöf Sylvía Magnúsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 10. apríl 1940. Maður hennar Guðmundur Kr. Guðmundsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.is.
  • Íslendingabók.is.
  • Keflavík í byrjun aldar - minningar frá Keflavík 1-3. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Reykjavík. Líf og saga 1989.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.