Sigríður Helgadóttir (Túnsbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Markús Sigurðsson og Sigríður Helgadóttir.

Sigríður Helgadóttir frá Vestra-Stokkseyrarseli í Stokkseyrarhreppi, húsfreyja fæddist 18. desember 1879 í Tóftum þar og lést 11. maí 1968.
Foreldrar hennar voru Helgi Pálsson frá Simbakoti á Eyrarbakka, vinnumaður á Tóftum, síðar bóndi í Stokkseyrarseli og á Helgastöðum á Stokkseyri, f. 9. ágúst 1859, d. 16. ágúst 1945 í Eyjum, og kona hans Anna Diðriksdóttir frá Fosshjáleigu í Laugardælasókn, Árn., vinnukona í Tóftum, síðar húsfreyja, f. 29. nóvember 1850, d. 27. nóvember 1937.

Systir Sigríðar í Eyjum var
1. Ástríður Helgadóttir húsfreyja á Fagrafelli, f. 28. ágúst 1883, d. 30. nóvember 1970.

Sigríður var með foreldrum sínum í æsku, í Tóftum og í Stokkseyrarseli.
Þau Markús giftu sig 1900, eignuðust sjö börn, en misstu eitt þeirra á þriðja ári þess. Þau voru bændur í Fagurhóli 1900-1908, á Gerðum í Gaulverjabæjarhreppi, Árn. 1908-1909, bjuggu á Bakka í Stokkseyrarhreppi 1909-1911.
Þau fluttu til Eyja 1911, bjuggu lengst á Túnsbergi við Vesturveg 22.
Þau fluttu til Hafnarfjarðar 1917, bjuggu þar til 1926, en síðan í Reykjavík.
Markús lést 1957 og Sigríður 1968.

I. Maður Sigríðar, (22. júlí 1900), var Markús Sigurðsson frá Fagurhóli í A.-Landeyjum, bóndi, smiður, f. þar 5. nóvember 1878, d. 30. október 1957.
Börn þeirra:
1. Hermannía Sigríður Anna Markúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 5. nóvember 1901, d. 19. maí 1995. Maður hennar Karl Moritz Guðmundsson.
2. Markúsína Sigríður Markúsdóttir húsfreyja á Eyrarbakka, síðar í Reykjavík, f. 25. apríl 1904, d. 14. febrúar 1996. Fyrrum sambúðarmaður Guðmundur Álfur Halldórsson. Maður hennar Karl Guðmundsson.
3. Helga Markúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 31. janúar 1906, d. 27. ágúst 2003. Maður hennar Kristinn B. Jónasson.
4. Hjörtrós Kristín Markúsdóttir verslunarstjóri í Reykjavík, f. 26. janúar 1914 í Eyjum, d. 9. september 1998, ógift.
5. Gunnþórunn Markúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 30. október 1915 í Eyjum, d. 27. ágúst 2001. Maður hennar Jón Ásgeirsson.
6. Árni Byron Markússon, f. 13. ágúst 1918, d. 3. febrúar 1921.
7. Þorbjörg Alda Markúsdóttir húsfreyja á Seltjarnarnesi og í Reykjavík, f. 1. júlí 1920, d. 3. mars 2018.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi. Guðni Jónsson. Stokkseyringafélagið í Reykjavík 1952.
  • Íslendingabók.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.