Gunnþórunn Markúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Gunnþórunn Markúsdóttir.

Gunnþórunn Markúsdóttir frá Túnsbergi við Vesturveg 22, húsfreyja fæddist þar 30. október 1915 og lést 27. ágúst 2001 á Hrafnistu í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Markús Sigurðsson frá Fagurhóli í A.-Landeyjum, bóndi, smiður, f. þar 5. nóvember 1878, d. 30. október 1957, og kona hans Sigríður Helgadóttir frá Vestra-Stokkseyrarseli á Stokkseyri, húsfreyja, f. 18. september 1879 í Tóftum þar, d. 11. maí 1968.

Börn Sigríðar og Markúsar:
1. Hermannía Sigríður Anna Markúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 5. nóvember 1901, d. 19. maí 1995. Maður hennar Karl Moritz Guðmundsson.
2. Markúsína Sigríður Markúsdóttir húsfreyja á Eyrarbakka, síðar í Reykjavík, f. 25. apríl 1904, d. 14. febrúar 1996. Fyrrum sambúðarmaður Guðmundur Álfur Halldórsson. Maður hennar Karl Guðmundsson.
3. Helga Markúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 31. janúar 1906, d. 27. ágúst 2003. Maður hennar Kristinn B. Jónasson.
4. Hjörtrós Kristín Markúsdóttir verslunarstjóri í Reykjavík, f. 26. janúar 1914 í Eyjum, d. 9. september 1998, ógift.
5. Gunnþórunn Markúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 30. október 1915 í Eyjum, d. 27. ágúst 2001. Maður hennar Jón Ásgeirsson.
6. Árni Byron Markússon, f. 13. ágúst 1918, d. 3. febrúar 1921.
7. Þorbjörg Alda Markúsdóttir húsfreyja á Seltjarnarnesi og í Reykjavík, f. 1. júlí 1920, d. 3. mars 2018. Maður hennar Eggert Theodórsson.

Gunnþórunn var með foreldrum sínum í æsku, á Túnsbergi, flutti með þeim til Hafnarfjarðar 1917 og til Reykjavíkur 1926.
Þau Jón giftu sig 1942, eignuðust þrjú börn.
Jón lést 1978 og Gunnþórunn 2001.

I. Maður Gunnþórunnar, (23. maí 1942), var Jón Ásgeirsson vélstjóri, stöðvarstjóri f. 26. október 1908, d. 20. febrúar 1978. Foreldrar hans voru Ásgeir Jónsson frá Svínaskógi á Fellsströnd, Dal., stöðvarstjóri, f. 29. nóvember 1879, d. 10. mars 1966, og kona hans Guðrún Stefánsdóttir frá Kverná í Grundarfirði, húsfreyja, f. 22. september 1884, d. 24. júní 1964.
Börn þeirra:
1. Ásgeir Markús Jónsson flugvirki, flugvélstjóri, f. 15. apríl 1943, d. 4. janúar 2015. Kona hans Gerður Ólafsdóttir, látin. Kona hans María Marta Sigurðardóttir.
2. Sigríður Jónsdóttir organisti, ljósmóðir, f. 8. febrúar 1946, d. 8. október 1993. Maður hennar Pétur Sigurðsson.
3. Guðrún Jónsdóttir, f. 21. mars 1950. Maður hennar Guðmundur M. Guðmundsson, látinn.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Morgunblaðið 9. september 2001. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.