Hjörtrós Kristín Markúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hjörtrós Kristín Markúsdóttir frá Túnsbergi við Vesturveg 22, bókbindari, bókhaldari, verslunarstjóri fæddist þar 26. janúar 1914 og lést 9. september 1998 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur (Borgarspítalanum).
Foreldrar hennar voru Markús Sigurðsson frá Fagurhóli í A.-Landeyjum, bóndi, smiður, f. þar 5. nóvember 1878, d. 30. október 1957, og kona hans Sigríður Helgadóttir frá Vestra-Stokkseyrarseli á Stokkseyri, húsfreyja, f. 18. september 1879 í Tóftum þar, d. 11. maí 1968.

Börn Sigríðar og Markúsar:
1. Hermannía Sigríður Anna Markúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 5. nóvember 1901, d. 19. maí 1995. Maður hennar Karl Moritz Guðmundsson.
2. Markúsína Sigríður Markúsdóttir húsfreyja á Eyrarbakka, síðar í Reykjavík, f. 25. apríl 1904, d. 14. febrúar 1996. Fyrrum sambúðarmaður Guðmundur Álfur Halldórsson. Maður hennar Karl Guðmundsson.
3. Helga Markúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 31. janúar 1906, d. 27. ágúst 2003. Maður hennar Kristinn B. Jónasson.
4. Hjörtrós Kristín Markúsdóttir verslunarstjóri í Reykjavík, f. 26. janúar 1914 í Eyjum, d. 9. september 1998, ógift.
5. Gunnþórunn Markúsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 30. október 1915 í Eyjum, d. 27. ágúst 2001. Maður hennar Jón Ásgeirsson.
6. Árni Byron Markússon, f. 13. ágúst 1918, d. 3. febrúar 1921.
7. Þorbjörg Alda Markúsdóttir húsfreyja á Seltjarnarnesi og í Reykjavík, f. 1. júlí 1920, d. 3. mars 2018. Maður hennar Eggert Theodórsson.

Kristín var með foreldrum sínum í æsku, á Túnsbergi, flutti með þeim til Hafnarfjarðar 1917 og til Reykjavíkur 1926.
Hún vann við bókband í mörg ár, við bókhald hjá Timburversluninni Völundi í tuttugu ár, var síðan verslunarstjóri hjá Iðnskólabúðinni.
Hún vann mikið fyrir KFUK, var m.a. í stjórn og leiðtogi við barna- og -unglingastarf.
Kristín var ógift og barnlaus, bjó á heimili Öldu systur sinnar.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 16. september 1998. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.