Sigmar Garðarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigmar Einar Garðarsson, frá Illugagötu 10, húsasmiður fæddist 19. september 1959.
Foreldrar hans voru Sigurður Garðar Ásbjörnsson sjómaður, vélstjóri, útgerðarstjóri, f. 27. mars 1932, d. 7. maí 2012, og kona hans Ásta Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1. ágúst 1933, d. 9. mars 2022.

Börn Garðars og Ástu:
1. Daði Garðarsson, f. 14. desember 1954. Kona hans Magnea Ósk Magnúsdóttir.
2. Ásbjörn Garðarsson, f. 31. mars 1956.
3. Gylfi Garðarsson, f. 5. ágúst 1957. Fyrrum kona hans Elísa Harpa Grytvik.
4. Sigmar Einar Garðarsson, f. 19. september 1959. Kona hans Ragna Garðarsdóttir.
5. Lilja Garðarsdóttir, f. 11. febrúar 1961. Maður hennar Magnús Gísli Magnússon.
6. Gerður Garðarsdóttir, f. 21. maí 1963. Maður hennar Eyjólfur Heiðar Heiðmundsson.
7. Ásta Garðarsdóttir, f. 12. maí 1965, d. 27. mars 1999. Maður hennar Karl Björnsson.
Sonur Ástu og fóstursonur Garðars:
8. Sigurður Kristinn Ragnarsson Runólfssonar, f. 29. desember 1951. Kona hans Halldóra Ingibjörg Ingólfsdóttir, látin. Kona hans Margrét Elín Ragnheiðardóttir.

Þau Ragna giftu sig 1985, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Foldahraun 32.

I. Kona Sigmars, (20. júlí 1985), er Ragna Garðarsdóttir, frá Heiðarvegi 22, húsfreyja, f. 11. júlí 1964.
Börn þeirra:
1. Garðar Örn Sigmarsson, f. 14. febrúar 1986.
2. Bylgja Dögg Sigmarsdóttir, f. 28. apríl 1991.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.