Rannveig Jónína Ásbjörnsdóttir
Rannveig Jónína Ásbjörnsdóttir, húsfreyja, flugfreyja, nú starfsmaður á Árbæjarsafni, fæddist 28. júní 1949.
Foreldrar hennar Ásbjörn Björnsson, f. 22. júlí 1924, d. 22. mars 2009, og Bjarney Sigurðardóttir, f. 28. september 1926, d. 19. desember 2019.
Börn Bjarneyjar og Ásbjörns:
1. Rannveig Jónína Ásbjörnsdóttir húsfreyja, f. 28. júní 1949. Maður hennar Stefán Carlsson.
2. Björn Eyberg Ásbjörnsson, f. 5. október 1951. Kona hans Valgerður Sveinsdóttir.
3. Fanney Björk Ásbjörnsdóttir húsfreyja, f. 17. apríl 1956. Maður hennar Tómas Jóhannesson Tómassonar.
4. Ester Ásbjörnsdóttir húsfreyja, ritari, f. 25. september 1957. Maður hennar Einar Egilsson.
Þau Stefán giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Rvk.
I. Maður Rannveigar er Stefán Carlsson, læknir, f. 29. maí 1949. Foreldrar hans Carl Pétur Stefánsson, f. 19. júlí 1924, d. 22. júní 2003, og Guðríður Lilja Jónsdóttir, f. 3. mars 1924, d. 6. ágúst 2000.
Börn þeirra:
1. Hrönn Stefánsdóttir, f. 17. apríl 1975.
2. Ásbjörn Stefánsson, f. 26. mars 1979.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Rannveig.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.