Björn Eyberg Ásbjörnsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Björn Eyberg Ásbjörnsson.

Björn Eyberg Ásbjörnsson smiður, múrarameistari fæddist 5. október 1951.
Foreldrar hans voru Ásbjörn Björnsson frá Heiðarhól, forstjóri, kaupsýslumaður, iðnrekandi, f. 22. júlí 1922 í Varmadal, d. 22. mars 2009, og kona hans Bjarney Sigurðardóttir frá Seyðisfirði, húsfreyja, verslunarmaður, saumakona, f. 28. september 1926, d. 19. desember 2019.

Börn Bjarneyjar og Ásbjörns:
1. Rannveig Jónína Ásbjörnsdóttir húsfreyja, f. 28. júní 1949. Maður hennar Stefán Carlsson.
2. Björn Eyberg Ásbjörnsson smiður, múrarameistari, f. 5. október 1951. Kona hans Valgerður Sveinsdóttir.
3. Fanney Björk Ásbjörnsdóttir húsfreyja, leikskólastjóri, f. 17. apríl 1956. Maður hennar Tómas Jóhannesson Tómassonar.
4. Ester Ásbjörnsdóttir húsfreyja, f. 25. september 1957. Maður hennar Einar Egilsson.

Björn var með foreldrum sínum í æsku.
Hann nam smíðar og múrverk, varð sveinn 1975, varð meistari í múrverki 1986. Hann hefur einnig lokið sveinsprófi í trésmíði.
Björn vann verslunarstörf í Eyjum.
Hann eignaðist barn með Katrínu 1972.
Björn flutti til Eyja 1975, vann við uppbyggingu eftir Gosið.
Þau Valgerður giftu sig 1977, eignuðust þrjú börn og Björn varð fósturfaðir Helgu Bjarkar.
Þau bjuggu í fyrstu í Blokkinni við Hásteinsveg, en byggðu húsið við Áshamar 42 og bjuggu þar meðan þau dvöldu í Eyjum.
Þau fluttu til Lands 2001, búa í Andarhvarfi í Kópavogi.

I. Barnsmóðir Björns er Katrín Guðmundsdóttir, síðar húsfreyja í Reykjavík, f. 8. júní 1954 á Ísafirði.
Barn þeirra:
1. Dagmar Björnsdóttir húsfreyja í Reykjavík og á Spáni, f. 20. júní 1972 á Ísafirði. Barnsfaðir hennar Gunnar Veigar Ómarsson. Maður hennar Matthías Einarsson.

II. Barnsmóðir Björns er Ingibjörg Þorfinnsdóttir bankamaður í Reykjavík, f. 30. júní 1952 á Skagaströnd.
Barn þeirra:
2. Þorfinnur Björnsson í Garðabæ, f. 3. júní 1974 í Reykjavík.

III. Barnsmóðir Björns er Hulda Eiðsdóttir fóstra, húsfreyja í Neskaupstað, f. 16. september 1955 á Snotrunesi í Borgarfirði eystra.
Barn þeirra:
3. Atli Freyr Björnsson í Danmörku, f. 11. október 1975 í Reykjavík. Kona hans Þórey Sigrún Leifsdóttir.

IV. Kona Björns, (22. október 1977), er Valgerður Sveinsdóttir kaupmaður í Eyjum, f. 24. júlí 1951.
Börn þeirra:
4. Bjarney Björnsdóttir leikskólastjóri, f. 6. janúar 1978. Maður hennar Þorkell Máni Pétursson.
5. Birna Björnsdóttir verslunarstjóri, f. 2. júní 1982. Fyrrum sambúðarmaður Ragnar Waage Pálmason. Maður hennar Jóhann Valdimarsson.
6. Ásbjörn Björnsson smiður, f. 27. mars 1993, ókvæntur.
Barn Valgerðar og fósturbarn Björns:
7. Helga Björk Valgerðar Björnsdóttir húsfreyja, leikskólastjóri, f. 18. apríl 1972. Hún er kjördóttir Björns. Maður hennar Sigursteinn Bjarni Leifsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.