Marta Jónsdóttir (Lögbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Marta Jónsdóttir frá Seljalandi u. V-Eyjafjöllum, húsfreyja fæddist 25. janúar 1892 á Tjörnum þar og lést 18. apríl 1924 á Vífilsstöðum.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson bóndi, f. 13. nóvember 1843 í Jónshúsi, d. 5. desember 1918, og kona hans Guðný Þorbjarnardóttir frá Kirkjulandshjáleigu í A-Landeyjum, húsfreyja, f. 17. ágúst 1848 í Voðmúlastaðahjáleigu, d. 16. maí 1940.

Börn Guðnýjar og Jóns:
1. Jónína Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 5. maí 1878, d. 7. október 1932.
2. Sigríður Jónsdóttir húsfreyja á Lögbergi, f. 4. nóvember 1883, d. 2. ágúst 1923, kona Sigurðar Sigurðssonar útvegsbónda og sjómanns, f. 26. júlí 1883, d. 25. janúar 1961.
3. Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Brimhólum, f. 24. maí 1884, d. 5. maí 1976, kona Hannesar Sigurðssonar, f. 6. ágúst 1881, d. 14. febrúar 1981.
4. Soffía Jónsdóttir saumakona í Görðum, f. 14. september 1885, d. 31. janúar 1965.
5. Marta Jónsdóttir, f. 25. janúar 1892 á Tjörnum, síðast á Þórsgötu 23 í Reykjavík, d. 18. apríl 1924.
Fósturbarn:
7. Elín Kortsdóttir, f. 3. nóvember 1909 á Fitjamýri u. V-Eyjafjöllum, d. 4. júlí 1930, grafin í Reykjavík.

Marta var með foreldrum sínum á Tjörnum og Seljalandi í æsku.
Hún var í Reykjavík 1910, en með heimili að Seljalandi, var með foreldrum sínum þar 1911-1917 og Lárus var þar í vinnumennsku 1914-1917.
Guðný Knudsen fæddist á Seljalandi 1916.
Marta og Lárus fluttu til Eyja 1917 með barnið Guðnýju, bjuggu á Hjalla 1917 og 1918, er Jóna fæddist, á Lögbergi 1920, en Lárus var kyndari þá á e/s Borg og var fjarverandi.
Þau fluttu til Reykjavíkur. Marta var síðast til heimilis á Þórsgötu 23 í Reykjavík.
Marta lést 1924 og Lárus 1968.

I. Maður Mörtu, (8. janúar 1916, skildu), var Lárus Sigmundsson Knudsen frá Svínadalsseli í Saurbæ, Dalas., kyndari, síðar verkamaður í Reykjavík, f. 25. október 1891, d. 24. ágúst 1968.
Börn:
1. Guðný Knudsen, f. 21. nóvember 1916, d. 11. maí 1949.
2. Jóna Knudsen, f. 22. október 1918 á Hjalla, d. 16. desember 1918.



Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Knudsensætt 1-2. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn 1986.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.