Leifur Gunnarsson (Skálholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Leifur Gunnarsson.

Leifur Gunnarsson fyrrum stýrimaður, rannsóknamaður hjá Hafrannsóknastofnuninni og skipaskoðunarmaður, fæddist 16. febrúar 1947 í Skálholti við Urðaveg 43.
Foreldrar hans voru Gunnar Stefánsson frá Litla-Gerði, smiður, sjómaður, f. 16. desember 1922, d. 27. desember 2010, og kona hans Elín Árnadóttir frá Skálholti yngra við Urðaveg, f. 18. september 1927, d. 7. október 2003.

Börn Elínar og Gunnars:
1. Leifur fyrrum stýrimaður, skipstjóri, síðar rannsóknamaður hjá Hafrannsóknastofnuninni og skipaskoðunarmaður, fæddur 16. febrúar 1947. Kona hans er Ingibjörg Birna Sigursteinsdóttir Marinóssonar, f. 21. september 1947.
2. Árni Gunnar rafvirkjameistari, f. 22. desember 1950. Kona hans er Erna Ingólfsdóttir Eiríkssonar, f. 24. október 1952.
3. Stefán Geir fyrrum sjómaður, starfsmaður við Íþróttamiðstöðina í Vestmannaeyjum, f. 1. febrúar 1953. Fyrrum kona hans Aðalheiður I. Sveinsdóttir Tómassonar, f. 7. apríl 1954.

Leifur var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lauk gagnfræðaprófi, og fiskimannaprófi 1968.
Leifur stundaði sjómennsku frá 15 ára aldri, var háseti, stýrimaður, og skipstjóri í afleysingum, var m.a. stýrimaður á Sæbjörgu (hét áður Jón Garðar).
Hann varð síðar rannsóknamaður hjá Hafrannsóknastofnuninni og skipaskoðunarmaður.
Þau Ingibjörg Birna giftu sig 1968, eignuðust tvíbura. Þau byggðu húsið við Austurhlíð 1, flutti inn á Þorláksmessu 1972 og urðu að yfirgefa húsið við Gosið í janúar 1973. Þau búa síðan við Illugagötu 48.

I. Kona Leifs, (6. apríl 1968), er Ingibjörg Birna Sigursteinsdóttir húsfreyja Marinóssonar, f. 21. september 1947.
Börn þeirra:
1. Gunnar Guðni Leifsson tannlæknir í Kópavogi, f. 26. desember 1967. Kona hans Ásta Kristjánsdóttir Ólafssonar.
2. Sigursteinn Bjarni Leifsson útibússtjóri Íslandsbanka í Eyjum, f. 26. desember 1967. Kona hans Helga Björk Valgerðar Björnsdóttir Ásbjörnssonar.



Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Leifur.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.