Ásta Kristjánsdóttir (kennari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Ásta Kristjánsdóttir)
Fara í flakk Fara í leit

Ásta Kristjánsdóttir, kennari í Garðabæ fæddist 20. febrúar 1970.
Foreldrar hennar Kristján Gunnar Ólafsson, framkvæmdastjóri, bifvélavirki, löggiltur bílasali, f. 22. ágúst 1945, og kona hans Magnúsína Ágústsdóttir, húsfreyja, f. 19. mars 1946.

Börn Magnúsínu og Kristjáns:
1. Ágústa Kristjánsdóttir snyrtifræðingur í Reykjavík, f. 28. september 1964. Maður hennar Gylfi Þór Rútsson.
2. Ásta Kristjánsdóttir kennari í Garðabæ, f. 20. febrúar 1970. Maður hennar Gunnar Guðni Leifsson.
3. Helga Kristjánsdóttir kennari í Garðabæ, f. 8. ágúst 1973 í Reykjavík. Fyrrum maður hennar Heimir Örn Hafsteinsson.

Þau Gunnar Guðni giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Garðabæ.

I. Maður Ástu er Gunnar Guðni Leifsson, tannlæknir, f. 26. desember 1967.
Börn þeirra:
1. Andrea Gunnarsdóttir, f. 4. mars 1995.
2. Agnes Gunnarsdóttir, f. 13. mars 2000.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.