Jóna Guðjónsdóttir (Goðafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóna Guðjónsdóttir frá Goðafelli við Hvítingaveg 3, húsfreyja fæddist þar 26. september 1944.
Foreldrar hennar voru Guðjón Pétursson frá Lambafelli u. Eyjafjöllum, vélvirki, f. 18. júní 1915, d. 14. október 1968, og kona hans Sigurlaug Jónsdóttir frá Ásólfsskála u. Eyjafjöllum, húsfreyja f. þar 10. júní 1916, d. 13. janúar 2012.

Föðursystkini Jónu í Eyjum:
1. Hallgrímur Pétursson verkamaður, f. 6. apríl 1906, d. 24. júlí 1958.
2. Sólveig Jakobína Pétursdóttir, f. 8. janúar 1917, d. 30. maí 2009

Jóna var eina barn foreldra sinna, var með þeim í æsku.
Hún vann við fiskiðnað og var afgreiðslumaður í verslunum.
Þau Grétar giftu sig 1968, eignuðust þrjú börn. Þau hafa búið við Heiðarveg 45.

I. Maður Jónu, (28. desember 1968), er Grétar Þórarinsson frá Hólmgarði, pípulagningameistari, kaupmaður, f. 14. ágúst 1941.
Börn þeirra:
1. Sigurlaug Grétarsdóttir húsfreyja, gjaldkeri hjá sýslumanni, f. 11. júní 1962. Maður hennar Stefán Ó. Jónasson.
2. Guðjón Grétarsson pípulagningameistari, f. 4. janúar 1968. Sambúðarkona hans Lilja Birgisdóttir.
3. Jóna Gréta Grétarsdóttir húsfreyja, viðskiptafræðingur, vinnur í Verslun Grétars Þórarinssonar, f. 3. september 1984. Maður hennar Sverrir M. Jónsson úr Keflavík.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.