Guðjón Pétursson (Goðafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Pétursson frá Lambafelli u. Eyjafjöllum, vélvirki fæddist þar 18. júní 1915 og lést 14. október 1968.
Foreldrar hans voru Pétur Hróbjartsson bóndi, f. 21. nóvember 1874, d. 7. desember 1941, og kona hans Steinunn Jónsdóttir húsfreyja, f. 15. nóvember 1875. d. 5. desember 1962.

Börn Péturs og Steinunnar í Eyjum:
1. Hallgrímur Pétursson verkamaður, f. 6. apríl 1906, d. 24. júlí 1958.
2. Guðjón Pétursson, f. 18. júní 1915, d. 14. október 1968.
3. Sólveig Jakobína Pétursdóttir, f. 8. janúar 1917, d. 30. maí 2009.

Föðursystkini Guðjóns í Eyjum voru :
1. Valgerður Hróbjartsdóttir í Skuld, f. 11. október 1876, d. 18. febrúar 1970.
2. Sigríður Hróbjartsdóttir húsfreyja á Lyngbergi, f. 4. apríl 1882, d. 15. apríl 1953.
3. Sigurður Hróbjartsson útgerðarmaður á Litlalandi við Kirkjuveg 59, f. 8. september 1883, d. 10. febrúar 1931.
4. Oktavía Hróbjartsdóttir húsfreyja á Brattlandi við Faxastíg 19, f. 31. maí 1890, d. 20. desember 1977.

Guðjón var með foreldrum sínum á Lambafelli 1920, og enn 1940, en fór þaðan 1941.
Hann lærði vélvirkjun í Eyjum, varð vélvirkjameistari.
Guðjón vann við iðn sína í Fiskiðjunni.
Þau Sigurlaug giftu sig 1945, eignuðust eitt barn. Þau komu að Goðafelli við Hvítingaveg 3 1942, eignuðust Jónu þar 1944. Þau byggðu Heiðarveg 45 1946 og bjuggu þar síðan.
Guðjón lést 1968 og Sigurlaug 2012.

I. Kona Guðjóns, (7. janúar 1945), var Sigurlaug Jónsdóttir frá Ásólfsskála u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. þar 10. júní 1916, d. 13. janúar 2012 á Sjúkrahúsinu.
Barn þeirra:
1. Jóna Guðjónsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 26. september 1944 á Goðafelli. Maður hennar Grétar Þórarinsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.