Sigurlaug Grétarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurlaug Grétarsdóttir, húsfreyja, gjaldkeri hjá sýslumanni fæddist 11. júní 1962.
Foreldrar hennar Grétar Guðlaugur Þórarinsson, pípulagningameistari, kaupmaður, f. 14. ágúst 1941, og kona hans Jóna Guðjónsdóttir, húsfreyja, f. 26. september 1944.

Börn Jónu og Grétars:
1. Sigurlaug Grétarsdóttir húsfreyja, gjaldkeri hjá sýslumanni, f. 11. júní 1962. Maður hennar Stefán Ó. Jónasson.
2. Guðjón Grétarsson pípulagningameistari, f. 4. janúar 1968. Sambúðarkona hans Lilja Birgisdóttir.
3. Jóna Gréta Grétarsdóttir húsfreyja, viðskiptafræðingur, vinnur í Verslun Grétars Þórarinssonar, f. 3. september 1984. Maður hennar Sverrir M. Jónsson úr Keflavík.

Þau Stefán Óskar giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu við Hásteinsveg 62.

I. Maður Sigurlaugar er Stefán Óskar Jónasson, verkstjóri, f. 9. desember 1953.
Barn þeirra:
1. Grétar Stefánsson, f. 11. desember 1987.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.