Jón Magnússon (Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Magnússon frá Brekkum á Rangárvöllum, bústjóri, bóndi í Stóra-Gerði fæddist 22. október 1911 á Brekkum og lést 10. janúar 1982.
Faðir hans var Magnús bóndi á Brekkum á Rangárvöllum 1896-1923, f. 4. nóvember 1856 í Vetleifsholtshelli í Ásahreppi í Rang., d. 17. febrúar 1923 á Brekkum, Jónsson bónda á Þóroddsstöðum í Ölfusi, Vetleifsholtshelli og Gaddstöðum á Rangárvöllum, f. 8. janúar 1828 í Krókatúni, d. 10. apríl 1860 á Gaddstöðum, Guðmundssonar bónda í Stóra-Dal undir Eyjafjöllum, Rauðnefsstöðum og Krókatúni, f. 5. nóvember 1787 að Steinum undir Eyjafjöllum, Magnússonar, og konu Guðmundar Magnússonar, (4. júní 1814), Guðrúnar húsfreyju, f. 3. júlí 1793, d. 18. janúar 1852, Pálsdóttur.
Móðir Magnúsar á Brekkum og kona Jóns Guðmundssonar á Gaddstöðum var, (3. júní 1851), Vilborg Einarsdóttir húsfreyja og yfirsetukona, síðan ekkja og bóndi á Gaddstöðum 1860-1862, húskona í Kumla á Rangárvöllum 1862-1866, síðan með sambýlismanni, Jóni Jónssyni bónda í Vetleifsholti; fædd 26. september 1832, d. 13. ágúst 1890 í Vetleifsholti. Foreldrar hennar voru Einar bóndi í Hvammi á Landi og á Reyðarvatni á Rangárvöllum, f. 30. nóvember 1790 í Hvammi, d. 28. mars 1851 á Reyðarvatni, Gunnarsson og fyrri kona hans, (18. október 1826), Guðbjörg húsfreyja, f. 28. desember 1806, d. 17. september 1847, Þorsteinsdóttir.

Móðir Jóns í Gerði og kona, (1. nóvember 1896), Magnúsar á Brekkum var Elín María húsfreyja á Brekkum 1896-1923, bjó þar síðan eftir mann sinn 1923-1924, en bjó síðan á Uxahrygg á Rangárvöllum 1924-1929, f. 22. ágúst 1873, d. 22. maí 1956, Sveinsdóttir bónda í Neðri-Dal, á Rauðafelli, en síðast á Raufarfelli undir Eyjafjöllum, f. 11. apríl 1801 í Hraungerði í Árn., d. 25. júní 1879, Jónssonar prests og bónda á Arnarstöðum í Hraungerðissókn, f. 9. ágúst 1772 í Hvammi í Skaftártungu, d. 8. júní 1843, Jónssonar, og fyrri konu sr. Jóns, (3. júlí 1799), Ingveldar húsfreyju, f. í september 1772, d. 2. júlí 1823, Sveinsdóttur.

Laundóttir sr. Jóns á Arnarstöðum var
1. Guðríður Jónsdóttir kona Einars Jónssonar í Dölum og síðar Tíla Oddssonar.
Meðal barna Jóns voru
2. Guðbjörg Jónsdóttir vinnukona í Dölum.
3. Anna Jónsdóttir húsfreyja í Selkoti móðir Gísla Stefánssonar kaupmanns í Hlíðarhúsi.
4. Sveinn bóndi á Raufarfelli, faðir
4a. Sigurðar Sveinssonar í Nýborg.
4b. Þorbjargar Sveinsdóttur húsfreyju, síðar vinnukonu í Nýborg.
Systir Jóns í Gerði var
1. Sigríður Magnúsdóttir húsfreyja í Höfn, f. 4. október 1899, d. 18. september 1968.

Jón var með foreldrum sínum í æsku. Hann var vinnumaður á Uxahrygg á Rangárvöllum 1930, vinnumaður í Ölversholti í Holtahreppi 1937. Hann eignaðist Þóru Kristínu með Helgu 1937.
Hann fluttist til Eyja. Þau Ingibjörg giftu sig 1940, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Hábæ 1940-1947, þar sem Jón var bústjóri, voru með búrekstur í Gerði 1947-1969, aftur búrekstur í Hábæ 1969-1973. Síðar var Jón verkamaður hjá Landgræðslunni í Gunnarsholti á Rangárvöllum.
Ingibjörg lést 1978 og Jón 1982.

I. Barnsmóðir Jóns var Helga Gestsdóttir frá Mel í Þykkvabæ, um skeið bóndi á Mel, f. 19. desember 1911, d. 9. janúar 1983. Foreldrar hennar voru Gestur Helgason bóndi, bátsformaður, f. 13. júní 1879 á Mel, d. þar 30. ágúst 1967.
Barn þeirra var
1. Þóra Kristín Jónsdóttir, síðar bóndi á Mel í Þykkvabæ, f. 26. maí 1937. Hún býr í Reykjavík.

II. Kona Jóns, (20. janúar 1940), var Ingibjörg Magnúsdóttir húsfreyja, f. 17. desember 1909 á Dyrhólum í Mýrdal, d. 5. nóvember 1978. Börn Ingibjargar og Jóns:
2. Magnús Birgir Jónsson skólastjóri á Hvanneyri, f. 24. ágúst 1942.
3. Sigurborg Erna Jónsdóttir húsfreyja, kennari, f. 18. nóvember 1943 í Hábæ.
4. Inga Jóna Jónsdóttir húsfreyja, læknafulltrúi, f. 5. maí 1950 í Gerði.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Magnús B. Jónsson.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.