Haukur Guðmundsson (verkstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Haukur Guðmundsson.

Haukur Guðmundsson frá Ási, sjómaður, verkstjóri í Vinnslustöðinni fæddist 25. október 1929 í Reykjavík og lést 3. september 1991.
Foreldrar hans voru Guðmundur Marinó Guðmundsson úr Reykjavík, f. 7. febrúar 1911, d. 11. desember 1964, og barnsmóðir hans Guðmunda Torfadóttir, síðar húsfreyja í Ási, f. 22. apríl 1905 í Hnífsdal, d. 27. september 1983.

Börn Guðmundu Torfadóttur og Sighvatar Bjarnasonar:
1. Margrét Sighvatsdóttir, f. 28. júlí 1931 í Ási, d. 15. nóvemer 2009.
2. Bjarni Sighvatsson, f. 2. desember 1932 í Ási, d. 9. október 2018.
3. Sigurður Arnar Sighvatsson, f. 6. ágúst 1934 í Ási.
4. Guðbjartur Richarð Sighvatsson, f. 10. janúar 1937 í Ási.
5. Hrefna Sighvatsdóttir, f. 23. júlí 1939 í Ási.
6. Sighvatur Sighvatsson, f. 30. júní 1942 í Ási, d. 26. mars 1955.
7. Magnús Torfi Sighvatsson, f. 19. ágúst 1944 í Ási, d. 20. mars 2002.
8. Jón Sighvatsson, f. 25. maí 1946 í Ási.

Börn Guðmundu og Gils Sigurðssonar:
9. Kjörbarn Jóns A. Kristjánssonar og Vilborgar Torfadóttur í Hnífsdal:
Kristjana Valgerður Jónsdóttir húsfreyja, f. 2. október 1926 á Ísafirði, d. 20. október 2011. Maður hennar Sigurður Viggó Nordquist.
10. Guðríður Gilsdóttir Kinloch húsfreyja, f. 31. desember 1927, d. 19. maí 2011. Maður hennar Gilbert Kinloch.

Barn Guðmundu og Guðmundar Marinós Guðmundssonar:
11. Haukur Guðmundsson sjómaður, verkstjóri, f. 25. október 1929 í Reykjavík, d. 3. september 1991.

Haukur var með móður sinni, kom með henni til Eyja 1930 og var í Ási í lok árs og 1934. Hann fór síðan í fóstur að Útstekk í Helgustaðahreppi í S.- Múl. Þar var hann enn 1948. Hann var sjómaður á Eskifirði. Síðar lá leiðin til Keflavíkur þar sem hann vann á Keflavíkurvelli á árunum 1953-1960.
Þau Theódóra fluttu aftur til Eskifjarðar 1960 og til Eyja 1963. Þar var Haukur verkstjóri hjá Vinnslustöðinni.
Þau Theódóra giftu sig, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Flötum 16 1972, síðast á Vestmannabraut 56B.
Haukur lést 1991.
Theodóra bjó að síðustu á Sólhlíð 19d. Hún lést 2014.

I. Kona Hauks var Theódóra Óskarsdóttir húsfreyja, f. 12. október 1933, síðast á Sólhlíð 19d, d. 29. júní 2014.
Börn þeirra:
1. Guðbjörg Ósk Hauksdóttir verkakona, öryrki, f. 11. október 1951 á Eskifirði, bjó síðast á Kirkjubæjarbraut 16, d. 2. júlí 2009.
2. Guðný Stella Hauksdóttir verkakona, söngvaskáld, verkalýðsbaráttukona, f. 17. nóvember 1953 í Keflavík, síðast á Áshamri 38a, d. 17. janúar 2015.
3. Ólöf Hauksdóttir verkakona, f. 29. ágúst 1955 í Keflavík. Barnsfaðir hennar Atli Sigurðsson. Maður hennar Ægir Sigurjónsson. Þau búa á Hásteinsvegi 4.
4. Haukur Hauksson sjómaður, f. 8. febrúar 1960 í Keflavík. Fyrrum sambýliskona Anna Ísfold Kolbeinsdóttir. Kona hans er Sigríður Högnadóttir. Þau búa í Helgafelli.
5. Arilíus Smári Hauksson sjómaður, f. 8. september 1971 í Eyjum. Kona hans Ólöf Una Ólafsdóttir. Þau búa á Akranesi.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.