Hafdís Ingvarsdóttir (Birtingarholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hafdís Ingvarsdóttir frá Birtingarholti, húsfreyja, símavörður fæddist þar 2. mars 1935 og lést 26. janúar 1997.
Foreldrar hennar voru Ingvar Þórólfsson frá Gerðakoti í Flóa, útgerðarmaður, húsasmiður, f. 27. mars 1896 að Króki þar, d. 13. apríl 1975, og kona hans Þórunn Friðriksdóttir frá Rauðhálsi í Mýrdal, húsfreyja, f. þar 28. apríl 1901, d. 13. júní 1972.

Börn Þórunnar og Ingvars:
1. Þórhildur Ingvarsdóttir húsfreyja í Mýrdal, f. 25. nóvember 1922, d. 8. ágúst 2000.
2. Þórunn Ingvarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 6. desember 1923 í Birtingarholti, d. 6. október 2013.
3. Friðrik Ingvarsson í Bandaríkjunum, f. 2. apríl 1926, d. 17. janúar 2004.
4. Hulda Ingvarsdóttir Berndsen húsfreyja í Reykjavík, f. 10. maí 1927, d. 28. apríl 2000.
5. Vigfús Ingvarsson, f. 1. nóvember 1928.
6. Hafsteinn Ingvarsson tannlæknir, f. 12. október 1932 í Birtingarholti, d. 29. janúar 2014.
7. Hafdís Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 2. mars 1935 í Birtingarholti, d. 26. janúar 1997.
8. Ingi Ingvarsson, f. 22. apríl 1937 í Birtingarholti, d. 14. ágúst 2018.
9. Jóna Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 25. júní 1939 í Birtingarholti.
10. Þórólfur Ingvarsson sjómaður á Akureyri, f. 16. apríl 1944 í Birtingarholti, d. 20. júlí 2015.

Hafdís var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann á skrifstofu Granda í Reykjavík við símavörslu.
Þau Gestur giftu sig, eignuðust tvö börn, en skildu.
Hún giftist Jóni Má. Þau voru barnlaus.
Jón Már lést 1992 og Hafdís 1997.

Hafdís var tvígift.
I. Fyrri maður hennar var Gestur Karl Karlsson, f. 14. júní 1933 á Stokkseyri, d. 19. júlí 1998.
Börn þeirra:
1. Hafþór Gestsson, f. 21. maí 1954. Barnsmóðir hans Guðbjörg Ósk Hauksdóttir. Kona hans Emma Guðlaug Eiríksdóttir.
2. Aðalheiður Gestsdóttir, f. 20. október 1963. Barnsfeður hennar Kristinn Bragi Kristinsson og Peter Baltser Christensen. Maður hennar Sigurður Þór Sigurðsson.

II. Síðari maður Hafdísar var Jón Már Gestsson, f. 11. september 1941, d. 22. janúar 1992.
Þau voru barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.