Guðrún Guðmundsdóttir yngri (Landlyst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Jónína Guðmundsdóttir frá Landlyst, húsfreyja fæddist 17. apríl 1932 í Víðidal og lést 6. september 1989.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Hróbjartsson skósmiður, f. 8. ágúst 1903, d. 20. ágúst 1975, og kona hans Sigrún Þórhildur Guðnadóttir húsfreyja, f. 16. janúar 1912, d. 20. desember 1993.

Börn Þórhildar og Guðmundar í Landlyst:
1. Guðrún Jónína Guðmundsdóttir, f. 17. apríl 1932 í Víðidal, d. 6. september 1989. Maður hennar Olgeir Jóhannsson.
2. Halldóra Guðmundsdóttir, f. 29. nóvember 1934, d. 2. júní 2009. Maður hennar Sigtryggur Helgason.
3. Helena Björg Guðmundsdóttir, f. 4. maí 1936 í Landlyst. Maður hennar Arnar Sigurðsson.
4. Konráð Guðmundsson, f. 30. desember 1938, d. 14. nóvember 2016. Kona hans Elín Guðbjörg Leósdóttir.
5. Sesselja Guðmundsdóttir, f. 8. ágúst 1940 í Landlyst, d. 9. janúar 1987. Maður hennar Reynald Jónsson.
6. Guðmundur Lárus Guðmundsson, f. 1. september 1942 í Landlyst, d. 24. október 2016. Kona hans Stefanía Ingibjörg Snævarr.
7. Guðni Þórarinn Guðmundsson, f. 6. október 1948 í Landlyst, d. 13. ágúst 2000. Kona hans Elín Heiðberg Lýðsdóttir.

Guðrún var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Olgeir giftu sig 1955, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Hásteinsvegi 7, byggðu við Heiðarveg 60 og bjuggu þar, uns þau fluttust til Reykjavíkur 1972 og bjuggu þar á Háleitisbraut 51.
Guðrún lést 1989 og Olgeir 1991.

I. Maður Guðrúnar Jónínu, (20. desember 1955), var Olgeir Jónas Jóhannsson frá Fáskrúðsfirði, múrari, f. 26. júlí 1933, d. 30. apríl 1991.
Börn þeirra:
1. Guðmundur Jóhann Olgeirsson læknir, f. 14. janúar 1956. Kona hans Edda Björk Arnardóttir.
2. Sigríður Bína Olgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 26. janúar 1968. Maður hennar Ásgeir Pétursson.
3. Þórhildur Ýr Olgeirsdóttir kennari, f. 14. nóvember 1969. Maður hennar Hrafnkell Tuliníus.
4. Gyða Björg Olgeirsdóttir aðstoðarmaður framkvæmdastjóra, f. 20. júní 1970. Sambýlismaður hennar Arnaldur Halldórsson.
5. Olga Hrönn Olgeirsdóttir grunnskólakennari, f. 27. janúar 1973. Maður hennar Bjarkar Þór Ólason.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.