Guðjón Gíslason (Suður-Nýjabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Gíslason frá Suður-Nýjabæ í Þykkvabæ, sjómaður fæddist þar 12. ágúst 1912 og lést 25. október 1991.
Foreldrar hans voru Gísli Gestsson bóndi, f. 8. september 1878 í Suður-Nýjabæ, d. 9. apríl 1979 í Reykjavík, og kona hans Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja, f. 25. júní 1886 í Snotru í Djúpárhreppi, d. 17. janúar 1979 í Reykjavík.

Tvíburabróðir Guðrúnar húsfreyju var
1. Gísli Magnússon í Skálholti við Urðaveg, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 25. júní 1886, d. 2. maí 1962.
Börn Guðrúnar og Gísla í Eyjum:
2. Guðjón Gíslason verkamaður, sjómaður, f. 13. ágúst 1912, d. 25. október 1991.
3. Kjartan Runólfur Gíslason fisksali, f. 21. júlí 1916, d. 1. apríl 1995.
Hálfbróðir þeirra, af sama föður, var
4. Guðmundur Kristinn Gíslason á Herjólfsgötu 7, verkamaður, bræðslumaður, f. 2. júlí 1898, d. 20. maí 1977.

Guðjón var með foreldrum sínum í æsku.
Hann fór ungur á vertíð í Eyjum og stundaði sjó frá Eyjum og öðrum útgerðarstöðum. Hann var oftast matsveinn.
Á síðari hluta ævinnar vann hann við smíðar og múrverk hjá Bænum.
Guðjón bjó með Jónu í Reykjavík 1937. Þau eignuðust sjö börn, en skildu 1958.
Hann sneri til Eyja 1967, bjó á Heiðarvegi 49 við Gos 1973, á Reynifelli við Vesturveg 15b með Ágústi syni sínum við andlát 1991.

I. Kona Guðjóns, skildu, var Jóna Þorgerður Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 2. október 1917 á Norðfirði, d. 25. október 1987.
Börn þeirra:
1. Guðrún Guðjónsdóttir húsfreyja á Foldahrauni 40, f. 10. mars 1938. Maður hennar er Helgi Marinó Sigmarsson sjómaður.
2. Ágúst Guðjónsson sjómaður, f. 16. október 1940, d. 14. nóvember 1992, ókv.
3. Gunnlaugur Viðar Guðjónsson matsveinn, kaupmaður í Reykjavík eftir Gos, f. 31. desember 1941, d. 20. júní 2010. Kona hans var Ágústa Ágústsdóttir húsfreyja.
4. Gísli Guðgeir Guðjónsson matsveinn, f. 12. ágúst 1944, d. 10. janúar 2020. Kona hans er Guðrún Alexandersdóttir.
5. Ófeigur Reynir Guðjónsson verkamaður, sjómaður, matsveinn, f. 22. október 1947, d. 26. maí 2022. Sambúðarkona hans Jona Olsen.
6. Dagbjörg Erna Guðjónsdóttir, f. 4. október 1948, d. 8. apríl 2011. Hún bjó með Reyni Sigurlássyni frá Reynistað, f. 6. janúar 1946, d. 1. mars 1979.
7. Stefán Sævar Guðjónsson matreiðslumeistari, f. 1. desember 1950. Kona hans er Sif Svavarsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.