Reynir Guðjónsson (Velli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ófeigur Reynir Guðjónsson.

Ófeigur Reynir Guðjónsson sjómaður, matsveinn fæddist 22. október 1947 í Reykjavík og lést 26. maí 2022 á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Guðjón Gíslason frá Suður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, Rang., verkamaður, sjómaður, f. 13. ágúst 1912, d. 25. október 1991, og kona hans Jóna Þorgerður Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 2. október 1917 á Norðfirði, d. 25. október 1987.

Börn Jónu og Guðjóns í Eyjum:
1. Guðrún Guðjónsdóttir húsfreyja á Foldahrauni 40, f. 10. mars 1938. Maður hennar er Helgi Marinó Sigmarsson sjómaður.
2. Ágúst Guðjónsson sjómaður, f. 16. október 1940, d. 14. nóvember 1992, ókv.
3. Gunnlaugur Viðar Guðjónsson matsveinn, kaupmaður í Reykjavík eftir Gos, f. 31. desember 1941, d. 20. júní 2010. Kona hans var Ágústa Ágústsdóttir húsfreyja.
4. Gísli Guðgeir Guðjónsson matsveinn, f. 12. ágúst 1944, d. 10. janúar 2020. Kona hans er Guðrún Alexandersdóttir.
5. Ófeigur Reynir Guðjónsson verkamaður í Reykjavík, f. 22. október 1947. Sambúðarkona hans Jona Olsen.
6. Dagbjörg Erna Guðjónsdóttir, f. 4. október 1948, d. 8. apríl 2011. Hún bjó með Reyni Sigurlássyni frá Reynistað, f. 6. janúar 1946, d. 1. mars 1979.
7. Stefán Sævar Guðjónsson matreiðslumeistari, f. 1. desember 1950. Kona hans er Sif Svavarsdóttir.

Reynir var með foreldrum sínum.
Hann fluttist ungur til Eyja, var sjómaður, oftast kokkur, bjó með móður sinni á Velli við Miðstræti 30 við Gos 1973.
Eftir Gosið 1973 flutti hann til Færeyja, var þar verktaki í nokkur ár. Þar hófu þau Jona búskap, fluttu til Eyja ásamt dætrum Jonu, þeim Kaju og Astu.
Þau fluttu til Reykjavíkur þar sem Reynir vann hjá Reykjavíkurborg. Hann bjó síðast í Gyðufelli 2.
Reynir lést 2022.

I. Sambúðarkona Reynis er Jona Olsen frá Færeyjum.
Börn hennar og fósturbörn Reynis:
1. Kaja.
2. Asta.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.