Ágúst Guðjónsson (Reynifelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ágúst Guðjónsson á Reynifelli, sjómaður, matsveinn fæddist 16. október 1940 í Reykjavík og lést 14. nóvember 1992.
Foreldrar hans voru Guðjón Gíslason frá Suður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, Rang., verkamaður, sjómaður, f. 13. ágúst 1912, d. 25. október 1991, og kona hans Jóna Þorgerður Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 2. október 1917 á Norðfirði, d. 25. október 1987.

Börn Jónu og Guðjóns í Eyjum:
1. Guðrún Guðjónsdóttir húsfreyja á Foldahrauni 40, f. 10. mars 1938. Maður hennar er Helgi Marinó Sigmarsson sjómaður.
2. Ágúst Guðjónsson sjómaður, f. 16. október 1940, d. 14. nóvember 1992, ókv.
3. Gunnlaugur Viðar Guðjónsson matsveinn, kaupmaður í Reykjavík eftir Gos, f. 31. desember 1941, d. 20. júní 2010. Kona hans var Ágústa Ágústsdóttir húsfreyja.
4. Gísli Guðgeir Guðjónsson matsveinn, f. 12. ágúst 1944, d. 10. janúar 2020. Kona hans er Guðrún Alexandersdóttir.
5. Ófeigur Reynir Guðjónsson verkamaður í Reykjavík, f. 22. október 1947, ókv.
6. Dagbjörg Erna Guðjónsdóttir, f. 4. október 1948, d. 8. apríl 2011. Hún bjó með Reyni Sigurlássyni frá Reynistað, f. 6. janúar 1946, d. 1. mars 1979.
7. Stefán Sævar Guðjónsson matreiðslumeistari, f. 1. desember 1950. Kona hans er Sif Svavarsdóttir.

Ágúst var með foreldrum sínum í æsku.
Hann ólst upp í Reykjavík, fór til sjós, var á togurum frá Reykjavík. Ágúst flutti til Eyja, var sjómaður og matsveinn.
Hann bjó í Fiskiðjunni við Gosið 1973, bjó með föður sínum á Reynivöllum við Vesturveg 15b eftir Gosið, en bjó síðast á Áshamri 40. Ágúst var ókvæntur og barnlaus.
Hann lést 1992.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.