Guðbjörg Valdadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðbjörg Kristjana Halldóra Valdadóttir.

Guðbjörg Kristjana Halldóra Valdadóttir frá Sandgerði við Vesturveg 9B, húsfreyja fæddist þar 12. október 1914 og lést 27. apríl 2007 á hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði, Gull.
Foreldrar hennar voru Valdi Jónsson í Sandgerði, f. 10. júlí 1872 í Steinum u. Eyjafjöllum, d. 21. ágúst 1947, og kona hans Guðrún Stefánsdóttir húsfreyja, f. 24. ágúst 1878 í Mið-Skála u. Eyjafjöllum, d. 14. febrúar 1954.

Börn Guðrúnar og Valda:
1. Eitt barn dáið fyrir 1910.
2. Kristján Þórarinn Valdason, f. 1. febrúar 1903, d. 16. desember 1924.
3. Árni Valdason, f. 17. september 1905, d. 26. júlí 1970.
4. Stefán Sigurþór Valdason, f. 17. mars 1908, d. 24. júlí 1982.
5. Kristný Jónína Valdadóttir, f. 10. október 1909, d. 10. ágúst 1993.
6. Óskar Valdason, tvíburi, f. 29. október 1912, d. 26. mars 1940.
7. Sigurjón Valdason, tvíburi, f. 29. október 1912, d. 13. maí 1984.
8. Guðbjörg Kristjana Halldóra Valdadóttir, f. 10. október 1914, d. 27. apríl 2007.
9. Jón Hafsteinn Valdason, f. 22. janúar 1920, d. 22. október 1920.
Barn Valda og Elínar Pétursdóttur:
10. Guðjón Pétur Valdason, f. 4. október 1893, d. 17. ágúst 1989.
Börn Valda og Halldóru Pálsdóttur:
11. Kristín Karítas Valdadóttir, f. 21. febrúar 1898, d. 20. september 1938.
12. Páll Valdason þjóðgarðsvörður, múrari, f. 14. júní 1900, d. 8. júní 2000.
Barn Valda og Sigurborgar Eyjólfsdóttur:
13. Lára Valdadóttir, síðar húsfreyja í Reykjavík, f. 28. október 1902 á Moldnúpi u. Eyjafjöllum, d. 19. nóvember 1989.

Guðbjörg var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Þorsteinn giftu sig, eignuðust sjö börn. Þau bjuggu í fyrstu á Siglufirði, fluttu í Garðinn 1968 og bjuggu þar síðan.
Þorsteinn lést 1982.
Guðbjörg dvaldi á hjúkrunarheimilinu Garðvangi frá 1998 og lést 2007.

I. Maður Guðbjargar var Þorsteinn Zophonías Aðalbjörnsson rafvirki, f. 7. maí 1912, d. 18. janúar 1982. Foreldrar hans voru Aðalbjörn Björnsson frá Stóru-Þverá í Holtshreppi í Skagaf., bóndi og sjómaður á Máná í Úlfsdölum, Ey., síðar verkamaður á Siglufirði, f. 21. janúar 1876, d. 14. desember 1961, og kona hans Aðalheiður Þorsteinsdóttir frá Helgustöðum í Haganeshreppi í Skagaf., húsfreyja, f. 15. september 1873, d. 30. desember 1957.
Börn þeirra:
1. Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson sjómaður, útgerðarmaður, f. 15. apríl 1935, d. 24. október 2018. Kona hans Ingibjörg Anna Gísladóttir.
2. Kristinn Erlendur Þorsteinsson, f. 6. ágúst 1938, d. 29. apríl 2002. Kona hans var Ásta Tryggvadóttir.
3. Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir, f. 10. september 1939. Maður hennar Jónas Jóhannsson.
4. Jóhann Þorsteinsson, f. 26. september 1942, d. 6. september 2010. Kona hans Sigurbjörg Helga Bjarnadóttir.
5. Leó Jóhannes Þorsteinsson, f. 25. september 1948. Kona hans Guðrún Alfreðsdóttir.
6. Valbjörn Óskar Þorsteinsson, f. 7. mars 1953.
7. Jón Þorsteinsson, f. 24. febrúar 1955.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.