Kristín Valdadóttir (Búrfelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jón og Kristín með Halldóru Þuríði dóttur sína.

Kristín Karítas Valdadóttir frá Sandfelli, húsfreyja á Búrfelli við Hásteinsveg 12 fæddist 21. febrúar 1898 á Steinum u. Eyjafjöllum og lést 20. september 1938.
Foreldrar hennar voru Valdi Jónsson bóndi í Mið-Skála, síðar sjómaður í Sandgerði, f. 21. júní 1874, d. 21. ágúst 1947, og barnsmóðir hans Halldóra Pálsdóttir, f. 5. ágúst 1860, d. 26. júní 1900.
Fósturforeldrar Kristínar Karítasar voru:
Guðjón Jónsson á Sandfelli, formaður, föðurbróðir hennar og Ingveldur Unadóttir húsfreyja.

Kristín fór til Guðjóns frænda síns og Ingveldar á Sandfelli 8 ára 1906, var vinnukona þar 1915.
Þau Jón giftu sig 1920, eignuðust fjögur börn, en misstu eitt þeirra fimm ára gamalt. Þau bjuggu á Hólmi 1920, á Sólbakka við Hásteinsveg 3 1921, í Stakkholti við Vestmannabraut 49 1926 og enn 1928, voru komin að Búrfelli 1930 og bjuggu þar síðan.
Kristín Karítas lést 1938 og Jón 1971.

I. Maður Kristínar Karítasar, (26. september 1920), var Jón Benónýsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 7. maí 1896 á Krossi í Innri-Akraneshreppi, d. 20. október 1971.
Börn þeirra:
1. Halldóra Þuríður Jónsdóttir, f. 16. mars 1921 á Sólbakka, d. 27. júlí 1926.
2. Halldór Jón Jónsson vélstjóri, útgerðarmaður, síðar starfsmaður Íþróttamiðstöðvarinnar f. 6. júní 1926 í Stakkholti, d. 26. september 1999.
3. Guðbjörg Benónýja Jónsdóttir húsfreyja, f. 21. júní 1928 í Stakkholti, d. 8. febrúar 1997.
4. Þórey Inga Jónsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 13. júní 1931 á Búrfelli, d. 5. mars 2020.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Klingenbergsætt - Niðjatal Hans Klingenbergs bónda á Akranesi og konu hans Steinunnar Ásmundsdóttur. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Líf og saga-bókaforlag 1991 og Þjóðsaga hf. 1993.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.