Eiríkur Bogason (Hlíðarhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Eiríkur Bogason.

Eiríkur Bogason frá Hlíðarhúsi, rafvirki, rafmagnstæknifræðingur, veitustjóri, framkvæmdastjóri fæddist þar 24. janúar 1947 og lést 23. mars 2018.
Foreldrar hans voru Bogi Jóhannsson rafvirkjameistari, f. 30. september 1920, d. 20. maí 2007 í Kópavogi, og kona hans Halldóra Guðrún Björnsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja, ljósmóðir, f. þar 5. júlí 1921, d. 4. júní 2009 í Kópavogi.

Börn Halldóru og Boga:
1. Jóhanna Sigríður Bogadóttir myndlistarmaður, f. 8. nóvemer 1944. Fyrrverandi maki Brynjar Viborg.
2. Eiríkur Bogason rafvirki, rafmagnstæknifræðingur, veitustjóri, framkvæmdastjóri, f. 24. janúar 1947, d. 23. mars 2018. Kona hans Guðbjörg Ólafsdóttir.
3. Kristján Bogason rafvirkjameistari, f. 24. maí 1948. Kona hans Jóhanna Emilía Andersen.
4. Soffía Bogadóttir, f. 13. júlí 1950, d. 27. júlí 1957.
5. Svava Bogadóttir kennari, skólastjóri í Vogum, f. 30. maí 1954. Fyrri maður hennar Hreinn Sigurðsson. Síðari maður Kristján Bjarnason.
6. Andvana drengur, f. 13. september 1959.
7. Gunnar Bogason sjómaður, f. 15. ágúst 1961. Fyrri maki Kathleen Valborg Clifford, síðari maki Bergþóra Aradóttir.

Eiríkur var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði rafvirkjun í Iðnskólanum í Eyjum, lauk sveinsprófi 1969. Meistari var Bogi Jóhannsson, nam rafmagnstæknifræði í Tækniskóla Íslands og Aarhus Teknukum.
Eiríkur starfaði hjá Neista sf. til 1979, Eyjabergi, Rafhönnun hf. og við rafmagnseftirlit hjá Rafmagnsveitum ríkisins. Eiríkur varð síðan veitustjóri Bæjarveitna í Eyjum frá 1986 og framkvæmdastjóri Samorku frá 1995. Hann kenndi við Framhaldsskólann
Hann sat um skeið í stjórn Sveinafélags rafvirkja í Eyjum, í stjórn Sambands íslenskra rafveitna 1987-1991 og frá 1992 og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sambönd orkuveitna og Vestmannaeyjabæ.
Þau Guðbjörg giftu sig 1970, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Vestmannabraut 74, síðast á Lundi 23 í Kópavogi.
Eiríkur lést 2018.

I. Kona Eiríks, (17. maí 1970), er Guðbjörg Ólafsdóttir frá Odda, húsfreyja, skólaliði, f. 17. júlí 1949 í Eyjum.
Börn þeirra:
1. Soffía Eiríksdóttir hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur, f. 23. janúar 1970. Maður hennar Bernharð Ólason.
2. Karl Eiríksson viðskiptastjóri, f. 1. september 1985. Kona hans Jóna Sigríður Jónsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 5. apríl 2018. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.