Karl Eiríksson
Karl Eiríksson, viðskiptastjóri fæddist 1. september 1985 í Rvk.
Foreldrar hans voru Eiríkur Bogason, rafmagnstæknifræðingur, veitustjóri, framkvæmdastjóri, f. 24. janúar 1947, d. 23. mars 2018, og kona hans Guðbjörg Ólafsdóttir, húsfreyja, f. 7. júlí 1949.
Börn Guðbjargar og Eiríks:
1. Soffía Eiríksdóttir hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur, f. 23. janúar 1970. Maður hennar Bernharð Ólason.
2. Karl Eiríksson viðskiptastjóri, f. 1. september 1985. Kona hans Jóna Sigríður Jónsdóttir.
Þau Jóna Sigríður hófu sambúð, eignuðust tvö börn.
I. Sambúðarkona Karls er Jóna Sigríður Jónsdóttir, f. 9. september 1984. Foreldrar hennar Jón Pétursson, f. 11. júlí 1964, og Sigríður Katrín Færseth, f. 7. júlí 1966.
Börn þeirra:
1. Eiríkur Bogi Karlsson, f. 1. febrúar 2015.
2. Ægir Óli Karlsson, f. 15. apríl 2021.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.