Dagmar Anna Guðbjartsdóttir
Dagmar Anna Guðbjartsdóttir, húsfreyja, lyftaramaður hjá Fiskimjölsverksmiðjunni, afgreiðslumaður fæddist 10. febrúar 1962 og lést 16. október 2012.
Foreldrar hennar voru Guðbjartur Gestur Andrésson, kennari, húasmíðameistari, f. 22. janúar 1922 á Hamri í Múlahreppi, Barð., d. 8. desember 2010, og kona hans Estar Anna Aradóttir frá Akurey, verkakona, húsfreyja, f. 3. mars 1927, d. 2. september 2020.
Börn Esterar Önnu:
1. Guðrún Selma Pálsdóttir, f. 17. júní 1946 í Akurey.
2. Ari Kristinn Jónsson tæknifræðingur í Reykjavík, f. 6. mars 1949 í Eyjum. Fyrrum kona hans Hulda Marý Breiðfjörð. Kona hans er Aðalbjög Ragna Hjartardóttir.
3. Andrés Guðbjartur Guðbjartsson strætisvagnastjóri í Reykjavík, f. 31. mars 1954 á Hólagötu 31. Fyrrum kona hans Rut Rósinkransdóttir.
4. Guðný Bóel Guðbjartsdóttir matvælatæknir á Selfossi, f. 10. júní 1956 í Eyjum. Maður hennar Grétar Halldórsson.
5. Bryndís Björg Guðbjartsdóttir öryrki, f. 1. febrúar 1958, óg.
6. Þórdís Sigurlína Guðbjartsdóttir starfsmaður á elliheimili á Eyrarbakka, f. 19. febrúar 1960, óg.
7. Dagmar Anna Guðbjartsdóttir lyftaramaður hjá Fiskimjölsverksmiðjunni, afgreiðslumaður, f. 10. febrúar 1962, d. 16. október 2012.
8. María Hrafnhildur Guðbjartsdóttir húsfreyja, skólaliði í Danmörku, f. 17. júní 1968. Maður hennar Andri Birkir Ólafsson.
Dagmar vann ýmis störf í Vestmannaeyjum, meðal annars í Vinnslustöð, hjá Eimskip og Fes. Eftir að hún flutti til Rvk, vann hún í byggingavinnu, vegagerð og síðast vann hún verslunarstörf.
Dagmar eignaðist barn með Tryggva 1980.
Þau Smári giftu sig, eignuðust ekki barn. Þau skildu.
I. Barnsfaðir Dagmarar Önnu er Tryggvi Högnason, f. 22. júlí 1960.
Barn þeirra:
1. Bjarki Þór Tryggvason, f. 31. mars 1980.
II. Fyrrum maður Dagmarar Önnu er Smári Harðarson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.