Andrés Guðbjartur Guðbjartsson
Andrés Guðbjartur Guðbjartsson, strætisvagnastjóri í Rvk fæddist 31. mars 1954.
Foreldrar hans voru Guðbjartur Gestur Andrésson, kennari, húasmíðameistari, f. 22. janúar 1922 á Hamri í Múlahreppi, Barð., d. 8. desember 2010, og kona hans Estar Anna Aradóttir frá Akurey, verkakona, húsfreyja, f. 3. mars 1927, d. 2. september 2020.
Börn Esterar Önnu:
1. Guðrún Selma Pálsdóttir, f. 17. júní 1946 í Akurey.
2. Ari Kristinn Jónsson tæknifræðingur í Reykjavík, f. 6. mars 1949 í Eyjum. Fyrrum kona hans Hulda Marý Breiðfjörð. Kona hans er Aðalbjög Ragna Hjartardóttir.
3. Andrés Guðbjartur Guðbjartsson strætisvagnastjóri í Reykjavík, f. 31. mars 1954 á Hólagötu 31. Fyrrum kona hans Rut Rósinkransdóttir.
4. Guðný Bóel Guðbjartsdóttir matvælatæknir á Selfossi, f. 10. júní 1956 í Eyjum. Maður hennar Grétar Halldórsson.
5. Bryndís Björg Guðbjartsdóttir öryrki, f. 1. febrúar 1958, óg.
6. Þórdís Sigurlína Guðbjartsdóttir starfsmaður á elliheimili á Eyrarbakka, f. 19. febrúar 1960, óg.
7. Dagmar Anna Guðbjartsdóttir lyftaramaður hjá Fiskimjölsverksmiðjunni, afgreiðslumaður, f. 10. febrúar 1962, d. 16. október 2012, óg.
8. María Hrafnhildur Guðbjartsdóttir húsfreyja, skólaliði í Danmörku, f. 17. júní 1968. Maður hennar Andri Birkir Ólafsson.
Þau Unnur Rut giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau skildu.
I. Fyrrum kona Andrésar er Unnur Rut Rósinkransdóttir, húsfreyja, verslunarstjóri hjá Ístex, f. 4. ágúst 1961. Foreldrar hennar Rósinkranz Kristjánsson, f. 31. janúar 1933, d. 7. nóvember 2014, og Sigurlín Ester Magnúsdóttir, f. 4. júní 1934, d. 23. nóvember 2014.
Bön þeirra:
1. Anna María Andrésdóttir, f. 22. ágúst 1983.
2. Sigurlín Edda Andrésdóttir, f. 20. maí 1985.
3. Guðbjartur Gestur Andrésson, f. 4. maí 1987.
4. Kristján Birgir Andrésson, f. 27. ágúst 1999.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Andrés.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.