Bylgja Ragnarsdóttir (Litlu-Löndum)
Bylgja Ragnarsdóttir, húsfreyja, verkakona á Akranesi fæddist 8. desember 1960 í Eyjum.
Foreldrar hennar Ragnar Brynjar Hjelm, sjómaður, f. 21. október 1937, d. 7. maí 2014 og sambúðarkona hans Anna Sigmarsdóttir, húsfreyja, saumakona, f. 3. nóvember 1942, d. 4. maí 2014.
Börn Önnu og Ragnars:
1. Erna Ragnarsdóttir húsfreyja, vinnur við umönnun aldraðra í Svíþjóð, f. 9. mars 1958 í Eyjum. Maki hennar P.O. Malmgren.
2. Elva Ragnarsdóttir húsfreyja í Mosfellsbæ, stuðningsfulltrúi í grunnskóla, f. 12. september 1959 á Litlu-Löndum. Maður hennar Gísli Þór Garðarsson Gíslasonar.
3. Bylgja Ragnarsdóttir húsfreyja, verkakona á Akranesi, f. 8. desember 1960 í Eyjum. Maður hennar Egill Haraldsson.
Börn Önnu og Eyjólfs:
4. Eðvald Eyjólfsson sjómaður, f. 6. ágúst 1964. Barnsmóðir hans Sigríður Kosek Kristinsdóttir frá Brekkuhúsi.
5. Eydís Eyjólfsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, skrifstofustjóri, f. 17. mars 1970. Fyrrum sambýlismaður hennar Björn Guðmundsson. Fyrrum sambýlismaður hennar Halldór Kristinn Jónsson.
Þau Egill giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa á Akranesi.
I. Maður Bylgju er Egill Haraldsson, úr Rvk, húsgagnasmiður, f. 15. ágúst 1959. Foreldrar hans Haraldur Valdimar Hólmsteinn Egilsson, f. 15. júní 1921, d. 18. apríl 2003, og Hekla Sæmundsdóttir, f. 25. maí 1919, d. 4. janúar 1986.
Börn þeirra:
1. Axel Rafn Egilsson, f. 13.. desember 1979.
2. Eva Dögg Egilsdóttir, f. 27. desember 1982.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Bylgja.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.