Björg Egilsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Björg Egilsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður fæddist 18. nóvember 1971.
Foreldrar hennar voru Egill Kristjánsson frá Stað, húsasmíðameistari, f. þar 14. október 1927, d. 21. ágúst 2015, og kona hans Guðbjörg Marta Hjörleifsdóttir frá Skálholti, húsfreyja, verkakona, f. 20. júlí 1932, d. 15. ágúst 2021.

Börn Guðbjargar og Egils:
1. Þóra Hjördís Egilsdóttir húsfreyja, gangavörður við Hamarsskóla, f. 18. júlí 1953 í Skálholti. Maður hennar Arngrímur Magnússon.
2. Drengur, f. 16. janúar 1955, d. 17. mars 1955.
3. Kristján Egilsson húsasmiður, húsvörður, f. 3. maí 1956 að Ásavegi 24. Kona Pála Björg Pálsdóttir.
4. Guðjón Egilsson húsasmíðameistari, f. 30. júlí 1957 á Ásavegi 24. Fyrrum kona Linda Björk Hrafnkelsdóttir.
5. Sigurbjörn Egilsson sjómaður, smiður, f. 6. júlí 1963. Kona hans Svanfríður Jóhannsdóttir.
6. Björg Egilsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 18. nóvember 1971. Maður hennar Sæmundur Ingvarsson.

Þau Sæmundur giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau búa við Illugagötu 71.

I. Maður Bjargar er Sæmundur Ingvarsson frá Hvolsvelli, vélsmiður, verkstjóri hjá Eyjablikki, f. 19. febrúar 1969. Foreldrar hans Eggert Ingvar Ingólfsson, f. 15. maí 1940, d. 21. febrúar 2010, og Aðalheiður Sæmundsdóttir, f. 15. desember 1942.
Barn þeirra:
1. Aðalheiður Stella Sæmundsdóttir, f. 28. maí 2002.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.