Aðalheiður Ólafsdóttir (Faxastíg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðni Sigurþór Ólafsson og Aðalheiður Ólafsdóttir, og dóttir þeirra Guðjóna Þórey Guðnadóttir.

Aðalheiður Ólafsdóttir frá Vestri-Torfastöðum í Fljótshlíð, húsfreyja á Faxastíg 31 fæddist 5. nóvember 1901 og lést 28. desember 1990.
Foreldrar hennar voru Ólafur Sigurðsson bóndi, síðar á Hólnum, Landagötu 18, f. 24. febrúar 1865, d. 30. janúar 1946 og kona hans Aðalheiður Jónsdóttir húsfreyja, f. 12. október 1873, d. 24. ágúst 1933.

Börn Aðalheiðar og Ólafs í Eyjum:
1. Jóhanna Ólafsdóttir húsfreyja, f. 26. júlí 1895, d. 27. júlí 1984, kona Guðmundar Jónssonar skósmiðs.
2.Guðrún Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 10. september 1897, d. 2. janúar 1957, kona Carls Gränz málara- og trésmíðameistara.
3. Aðalheiður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 5. nóvember 1901, d. 28. desember 1990, kona Guðna Ólafssonar.
4. Óskar Ólafsson frá Hólnum við Landagötu, pípulagningamaður, f. 15. ágúst 1905, d. 23. janúar 1986, maður Kristínar Jónsdóttur.
5. Jón Ólafsson sjómaður, verkamaður, síðar í Reykjavík, f. 1. apríl 1910, d. 7. nóvember 1937.
6. Ingólfur Ólafsson sjómaður, síðast í Görðum, f. 23. janúar 1914, d. 12. janúar 1941.
7. Guðmunda Ólafsdóttir vinnukona á Karlsbergi 1930, síðar húsfreyja í Hafnarfirði, f. 10. maí 1916, d. 17. júlí 1994.
8. Kjartan Ólafsson kennari, f. 3. ágúst 1917, d. 13. desember 1969. Kona hans var Sigríður Elísabet Bjarnadóttir húsfreyja.

Aðalheiður var með foreldrum sínum í æsku, var með þeim á Vestri-Torfastöðum 1920.
Þau Guðni giftu sig 1925 og fluttust til Eyja á því ári.
Þau eignuðust þrjú börn, bjuggu í Haga 1926, í Ártúni 1927 og enn 1930, en voru komin á Faxastíg 31 1934 og bjuggu þar síðan meðan báðum entist líf.
Guðni lést 1981, jarðsettur í Reykjavík. Aðalheiður flutti til Reykjavíkur, bjó síðast í Bólstaðarhlíð 68 og lést 1990.

I. Maður Aðalheiðar, (1925), var Guðni Sigurþór Ólafsson frá Steinum u. Eyjafjöllum, verkamaður, f. 25. apríl 1899, d. 12. ágúst 1981.
Börn þeirra:
1. Ellý Dagmar Guðnadóttir húsfreyja, f. 23. janúar 1926 í Haga, d. 27. apríl 2016 í Hlíð á Akureyri. Maður hennar var Gunnar Tryggvi Óskarsson múrarameistari á Akureyri, f. 13. mars 1925, d. 3. september 2007.
2. Guðjóna Þórey Guðnadóttir húsfreyja, bankastarfsmaður í Kópavogi, f. 30. nóvember 1930 í Ártúni, Vesturvegi 20, d. 23. maí 2006. Maður hennar Þór Pálsson verkstjóri, bifreiðastjóri, f. 15. ágúst 1934, d. 4. janúar 2017.
3. Marta Júlía Guðnadóttir, húsfreyja, f. 30. nóvember 1930 í Ártúni, d. 18. október 2018. Sambýlismaður hennar Skúli Matthíasson, f. 6. nóvember 1934.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.