Þorgeir Guðmundsson (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Þorgeir Guðmundsson.

Þorgeir Guðmundsson frá Háagarði, sjómaður, trillukarl, rafvirki, tónlistarmaður fæddist 10. september 1944 í Skálavík í Fáskrúðsfirði og lést 23. október 2017 á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Guðmundur Eyjólfur Jóelsson sjómaður, bóndi, f. 5. janúar 1907, d. 14. september 1965, og sambúðarkona hans Laufey Sigurðardóttir húsfreyja, f. 19. október 1910 í Móakoti á Álftanesi, d. 15. júlí 1995.

Börn Laufeyjar og Guðmundar:
1. Sigurbjörg Bára Guðmundsdóttir, f. 25. október 1929 á Hvanneyri, d. 28. febrúar 1948.
2. Þórdís Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 27. ágúst 1931 á Hvanneyri.
3. Jóel Guðmundsson sjómaður, stýrimaður, skipstjóri, f. 1. júlí 1936 í Skálavík í Fáskrúðsfirði, drukknaði 4. mars 1981.
4. Bjarni Guðmundsson sjómaður, skipstjóri, f. 10. ágúst 1938 í Skálavík í Fáskrúðsfirði, drukknaði 4. mars 1981.
5. Drengur, f. 28. júlí 1942, d. 25. október 1942.
6. Þorgeir Guðmundsson sjómaður, rafvirki, tónlistarmaður, f. 10. september 1944 í Skálavík í Fáskrúðsfirði, d. 23. október 2017.
7. Sigurbjörn Unnar Guðmundsson sjómaður, smiður, f. 22. júlí 1947 í Háagarði.
8. Ómar Guðmundsson sjómaður, beitningamaður, f. 30. júní 1953 í Háagarði.
9. Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 15. janúar 1958, d. 21. nóvember 1960, drukknaði í Vilpu.

Þorgeir var með foreldrum sínum í æsku, flutti með þeim til Eyja 1946.
Hann nam tónlist og rafvirkjun.
Þorgeir var snemma virkur í tónlist var í S. Ó. og var einn af stofnendum hljómsveitarinna Logar.
Hann stundaði sjómennsku frá æsku auk vinnu við rafvirkjun og tónlist. Þeir Ómar bróðir hans réru á bátnum Hlýra, síðar eignaðist hann trilluna Eyju og réri á henni.
Við Gos 1973 flutti hann í Garð á Miðnesi og bjó síðast í Eyjaholti 4.
Þorgeir lést 2017, ókvæntur og barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Morgunblaðið 3. nóvember 2017. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Ættingjar.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.