Guðmundur Jóelsson (Háagarði)
Fara í flakk
Fara í leit
Guðmundur Eyjólfur Jóelsson frá Háagarði fæddist 5. janúar 1907 og lést 14. september 1965. Hann var sonur Jóels Eyjólfssonar og Þórdísar Guðmundsdóttur frá Vesturhúsum. Bræður Guðmundar voru Þorgeir og Edvin, báðir formenn.
Kona Guðmundar var Laufey Sigurðardóttir fædd 19. okt. 1910, dáin 15. júní 1995. Þau bjuggu 12 ár í Skálavík (1934-1946) í Fáskrúðsfirði og eignuðust 9 börn:
- Sigurbjörg Bára f.1929, d.1948
- Þórdís f.1931
- Jóel f.1936, vélstjóri og skipstjóri drukknaði 4. mars 1981
- Bjarni f.1938, drukknaði 4. mars 1981, trilluformaður og formaður með m/b Bárum, sem þeir bræður áttu
- drengur f.1942 d. sama ár
- Þorgeir f. 1944
- Unnar f.1947
- Ómar f.1953
- Ingibjörg f. 1958, drukknaði í Vilpu 1960
Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðmund:
- Annan skal ygginn hranna
- ennþá við Jóel kenna.
- Guðmundur strauminn stundar
- stinnur sá gyrnung finnur.
- Þristinum þjónar lista
- þundur, sem miðin grundar.
- Skak iðkar sjós í svaka
- sannlega beimur hranna.
Myndir
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.