Stefán Vilhjálmsson (Hábæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2015 kl. 19:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2015 kl. 19:59 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Stefán Vilhjálmsson verkamaður í Hábæ fæddist 24. ágúst 1890 í Húnakoti í Djúpárhreppi í Rang. og lést 29. júní 1873 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Vilhjálmur Kristinn Vilhjálmsson bóndi í Húnakoti, f. 13. ágúst 1851 í Hallskoti í Flóa, drukknaði við Þykkvabæjarsand 21. mars 1895, og kona hans, Guðný Kristín Magnúsdóttir húsfreyja, f. 12. október 1854 í Ásmúla í Ásahreppi, d. 10. nóvember 1939.

Stefán var bróðir Jóhanns Markúsar Vilhjálmssonar á Selalæk, f. 13. júlí 1893, d. 23. júní 1967.

Stefán var á 5. ára, þegar faðir hans drukknaði. Hann var 11 ára niðursetningur í Mel í Djúpárhreppi 1901, vinnumaður þar 1910.
Hann fluttist til Eyja 1915.
Þau Guðríður giftu sig 1916 og bjuggu í Þingholti. Á Geirlandi bjuggu þau við fæðingu Guðnýjar Sigurleifar 1918, á Litlu-Grund voru þau 1920, er þau misstu Þorstein nýfæddan. Þau voru í París, síðar (Stíghús), við fæðingu Þorsteins yngri 1921, á Oddeyri (Flötum 14) 1923 við fæðingu Regínu Matthildar. Þá voru þau í Hábæ 1930.
Stefán og Guðríður fluttust til Reykjavíkur. Þar bjó Stefán í Eskihlíð 14 við andlát 1973.

Kona Stefáns, (23. júlí 1916), var Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 12. maí 1893, d. 24. júlí 1984.
Börn þeirra hér:
1. Guðný Sigurleif Stefánsdóttir, f. 14. febrúar 1918, d. 15. janúar 2009.
2. Ólafur Kristinn Stefánsson múrari, f. 8. ágúst 1919, d. 29. febrúar 2000.
3. Þorsteinn Stefánsson, f. 2. október 1920 á Litlu-Grund, d. 24. nóvember 1920.
4. Þorsteinn Stefánsson sjómaður, f. 9. nóvember 1921 í París (síðar Stíghús), fórst með flugvélinni Glitfaxa 31. janúar 1951.
5. Regína Matthildur Stefánsdóttir, f. 18. september 1923.
6. Kristín Stefánsdóttir, f. 21. febrúar 1925.
7. Ásta Stefánsdóttir, f. 27. september 1927.
8. Vilhjálmur Stefánsson, f. 12. febrúar 1931.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók III –Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.