„Ritverk Árna Árnasonar/Árni Sigfússon (Skálholti)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 8: Lína 8:

Börn Árna og Ólafíu:

Börn Árna og Ólafíu:

1. [[Jón Árni Árnason|Jón Árni]] skrifstofumaður, f. 10. mars 1916, d. 2. ágúst 1970, kvæntur [[Þyrí Björnsdóttir (Kirkjubæ)|Þyrí Björnsdóttur]], f. 29. september 1915, d. 3. febrúar 1954, dóttur [[Björn Guðjónsson (Kirkjubóli)|Björns Guðjónssonar]] á [[Kirkjubær|Kirkjubæ]] og konu hans [[Sigríður Jónasdóttir (Heimagötu 30)|Sigríðar Jónasdóttur]].

1. [[Jón Árni Árnason|Jón Árni]] skrifstofumaður, f. 10. mars 1916, d. 2. ágúst 1970, kvæntur [[Þyrí Björnsdóttir (Kirkjubæ)|Þyri Björnsdóttur]], f. 29. september 1915, d. 3. febrúar 1954, dóttur [[Björn Guðjónsson (Kirkjubóli)|Björns Guðjónssonar]] á [[Kirkjubær|Kirkjubæ]] og konu hans [[Sigríður Jónasdóttir (Heimagötu 30)|Sigríðar Jónasdóttur]].

2. [[Ragnheiður Árnadóttir (Skálholti)|Ragnheiður]] húsfreyja, f. 10. október 1918, gift bandarískum manni.

2. [[Ragnheiður Árnadóttir (Skálholti)|Ragnheiður]] húsfreyja, f. 10. október 1918, gift bandarískum manni.

3. [[Guðni Hjörtur Árnason (Skálholti)|Guðni Hjörtur]] smiður, fæddur 14. ágúst 1920, d. 3. október 1965.

3. [[Guðni Hjörtur Árnason (Skálholti)|Guðni Hjörtur]] smiður, fæddur 14. ágúst 1920, d. 3. október 1965.

Útgáfa síðunnar 17. mars 2014 kl. 12:02

Árni Sigfússon.

Kynning.

Árni Sigfússon kaupmaður í Skálholti fæddist 31. júlí 1887 og fórst í flugslysi 7. mars 1948.
Foreldrar hans voru Sigfús Árnason bóndi, organisti, póstafgreiðslumaður og alþingismaður á Löndum, f. 10. september 1856, d. 5. júní 1922 og kona hans, (skildu), Jónína Kristín Nikólína, f. 14. ágúst 1856, d. 16. nóvember 1906.

Kona Árna var Ólafía Sigríður, f. 8. maí 1895 að Gerðakoti í Gerðum, d. 15. mars 1962.

Börn Árna og Ólafíu:
1. Jón Árni skrifstofumaður, f. 10. mars 1916, d. 2. ágúst 1970, kvæntur Þyri Björnsdóttur, f. 29. september 1915, d. 3. febrúar 1954, dóttur Björns Guðjónssonar á Kirkjubæ og konu hans Sigríðar Jónasdóttur.
2. Ragnheiður húsfreyja, f. 10. október 1918, gift bandarískum manni.
3. Guðni Hjörtur smiður, fæddur 14. ágúst 1920, d. 3. október 1965.
4. Elín húsfreyja, fædd 18. september 1927, d. 7. október 2003, gift Gunnari Stefánssyni vélstjóra frá Gerði, f. 16. desember 1922, d. 27. desember 2010.
5. Elísabet, f. 4. mars 1930, húsfreyja og framkvæmdastjóri Geðverndarfélags Íslands, gift Jóhanni Möller, f. 7. febrúar 1920, d. 26. febrúar 2011.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Árni var fremur hár maður, dökkhærður, vel þrekinn um herðar, og sín síðari ár nokkuð holdugur. Hann var vel sterkur maður, mjög lipur í hreyfingum, föngulegur á velli og fríður.
Hann var kátur og fjörugur, glensfullur og fyndinn vel og orðhagur, en átti þó til að vera mjög þungur í skapi, stríðinn og stirfinn; skap hans var þó létt yfirleitt, en þó gat hann reiðst illa og var yfirleitt bráður, en reiðin rokin úr honum á sama augnabliki og vildi þá allt gott gera.
Hann var vel látinn maður og vinhollur. Árni var vel miðlungs veiðimaður og tók virkan þátt í fuglatekju í ýmsum úteyjum og kom sér vel meðal starfsfélaga sinna, frískur ætíð og fær um margt. Hann hætti snemma veiðum, varð kaupmaður og útgerðarmaður í stórum stíl, hugsjónamaður mikill, braust í mörgu, sigraði í dag, tapaði á morgun.

Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Árni Sigfússon (Skálholti)

Heimildir