„Margrét Halldórsdóttir (Oddsstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Margrét Halldórsdóttir''' húsfreyja á Oddsstöðum fæddist 16. janúar 1832 í Steinasókn u. Eyjafjöllum og lést 15. febrúar 1919.
Faðir hennar var Hall...)

Ekkert breytingarágrip
Lína 9: Lína 9:
Þá er börnunum komið í fóstur. Þau voru niðursetningar á ýmsum heimilum, á [[Gjábakki|Gjábakka]], í [[Elínarhús]]i, í [[Kastali|Kastala]] og í [[Gvendarhús]]i.

Þá er börnunum komið í fóstur. Þau voru niðursetningar á ýmsum heimilum, á [[Gjábakki|Gjábakka]], í [[Elínarhús]]i, í [[Kastali|Kastala]] og í [[Gvendarhús]]i.

Margrét bjó með [[Guðmundur Ögmundsson|Guðmundi Ögmundssyni]] fyrst í [[Gata við Kirkjuveg|Götu]] við [[Kirkjuvegur|Kirkjuveg]], en síðar í [[Borg (við Stakkagerðistún)|Borg]] við [[Stakkagerðistún]].

Þar bjugu Margrét og Guðmundur ógift og í mikilli óþökk yfirvalda til 1874, er þau voru neydd af landsyfirvöldum til giftingar, ella dæmd í fangelsi.

Þar bjuggu Margrét og Guðmundur ógift og í mikilli óþökk yfirvalda til 1874, er þau voru neydd af landsyfirvöldum til giftingar, ella dæmd í fangelsi.

Í Götu eignuðust þau Guðmundur tvö börn. Þau skildu samvistir 1894. (Sjá Blik 1978).

Í Götu eignuðust þau Guðmundur tvö börn. Þau skildu samvistir 1894. (Sjá Blik 1978).

Margrét var hjá dóttur sinni Elínu á Helluvaði á Rangárvöllum 1910.

Margrét var hjá dóttur sinni Elínu á Helluvaði á Rangárvöllum 1910.

Útgáfa síðunnar 5. júní 2013 kl. 22:04

Margrét Halldórsdóttir húsfreyja á Oddsstöðum fæddist 16. janúar 1832 í Steinasókn u. Eyjafjöllum og lést 15. febrúar 1919.
Faðir hennar var Halldór bóndi í Steinum, f. á Seljavöllum u. Eyjafjöllum, skírður 23. desember 1775, d. 3. apríl 1832, Eiríksson bónda í Ystabæli, f. 1740, Sigurðssonar, og Ingunnar húsfreyju, f. (1743), d. 13. nóvember 1797, Þorvaldsdóttur.
Móðir Margrétar á Oddsstöðum og síðari kona, (25. október 1828), Halldórs var Oddný húsfreyja, f. 9. janúar 1793 í Rimahúsi í Holtssókn u. Eyjafjöllum, d. 7. júlí 1833, Jónsdóttir bónda í Berjanesi u. Eyjafjöllum, f. 1757, Sigurðssonar bónda í Svaðbæli, f. 1705, Jónssonar, og konu Sigurðar í Svaðbæli, Steinunnar húsfreyju, f. 1720, Ólafsdóttur.
Móðir Oddnýjar og barnsmóðir Jóns í Berjanesi var Guðrún, f. (1761), Guðmundsdóttir.
Margrét var 3 ára fósturbarn í Berjanesi u. Eyjafjöllum 1835 hjá hjónunum Eyjólfi Guðmundssyni og Emerentíönu Guðmundsdóttur. Hún var 9 ára hjá þeim í Vatnsdalskoti í Fljótshlíð 1840, 15 ára uppeldisdóttir þeirra í Þjóðólfshaga í Holtum 1845, vinnukona þar 1850.
Hún var gift húsfreyja á Oddsstöðum í Eyjum 1855.
Við manntal 1860 var hún húsfreyja á Oddsstöðum með Jóni og börnunum Eiríki, Elínu og Jóni.
Jón lést 1866 í Vanangri. Margrét fór í vinnumennsku, 38 ára ekkja og vinnukona í Túni hjá hjónunum Jóni Vigfússyni og Guðrúnu Þórðardóttur og í Presthúsum hjá Jóni Jónssyni og Ingibjörgu Stefánsdóttur.
Þá er börnunum komið í fóstur. Þau voru niðursetningar á ýmsum heimilum, á Gjábakka, í Elínarhúsi, í Kastala og í Gvendarhúsi.
Margrét bjó með Guðmundi Ögmundssyni fyrst í Götu við Kirkjuveg, en síðar í Borg við Stakkagerðistún.
Þar bjuggu Margrét og Guðmundur ógift og í mikilli óþökk yfirvalda til 1874, er þau voru neydd af landsyfirvöldum til giftingar, ella dæmd í fangelsi.
Í Götu eignuðust þau Guðmundur tvö börn. Þau skildu samvistir 1894. (Sjá Blik 1978).
Margrét var hjá dóttur sinni Elínu á Helluvaði á Rangárvöllum 1910.
Nánari saga Margrétar er sögð í Bliki 1978: „Í hneykslanlegri sambúð“

Margrét var tvígift:
I. Fyrri maður hennar var Jón Þorgeirsson bóndi í Mýrdal, síðar bóndi og hagyrðingur á Oddsstöðum, f. 1808 á Rauðhálsi í Mýrdal, d. 6. júní 1866 í Vanangri.
Börn Jóns og Margrétar voru:
1. Eiríkur Jónsson, f. 1855.
2. Elín Jónsdóttir, f. 1856, vinnukona hjá Agnesi Aagaard sýslumannsfrú, síðar húsfreyja á Helluvaði á Rangárvöllum, móðir Ingunnar í Skuld og amma Skuldarsystkina.
3. Jón Jónsson Vestmann, f. 10. mars 1860. Hann fluttist til Austfjarða, bjó í Mjóafirði og á Seyðisfirði. Hann fór til Vesturheims 1901 frá Sörlastöðum í Seyðisfirði, ásamt konu sinni Soffíu Hallgrímsdóttur og syni þeirra Jóni Vestmann yngri, eins árs.
4. Eyjólfur Jónsson, f. 18. ágúst 1862. Hann var alinn upp hjá Jóni og Sesselju í Gvendarhúsi, en varð bóndi á Vesturhúsum, kvæntur Valgerði Eiríksdóttur.
II. Síðari maður Margrétar var Guðmundur Ögmundsson, f. 16. apríl 1833, d. 27. maí 1914.
Börn Margrétar og Guðmundar:
5. Júlíus Guðmundsson frá Götu við Kirkjuveg, f. 16. ágúst 1868, d. 26. janúar 1951.
6. Ögmundur Guðmundsson frá Götu við Kirkjuveg, f. 27. desember 1872, d. 1882.
7. Jakob Guðmundsson (SMJ).

Heimildir