Eiríkur Jónsson (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Eiríkur Jónsson frá Oddsstöðum fæddist 2. nóvember 1855, d.11. nóvember 1884.
Foreldrar hans voru Jón Þorgeirsson bóndi á Oddsstöðum, f. 1808, d. 6. júní 1866, og síðari kona hans Margrét Halldórsdóttir húsfreyja, f. 16. janúar 1832, d. 15. febrúar 1919.

Eiríkur var með foreldrum sínum til 1865, en var niðursetningur á Gjábakka í lok ársins, hjá Kristínu Gísladóttur og Lárusi Jónssyni í Kornhól 1867-1869 og hjá þeim á Búastöðum vestri 1870 og 1871. Hann var vinnumaður í Juliushaab 1880, í Stakkagerði 1881-1883.
Eiríkur fluttist að Hólmi í A-Landeyjum 1883 og þaðan til Elínar systur sinnar á Helluvaði á Rangárvöllum 1884 með bústýrunni Jórunni Þorsteinsdóttur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.