„Margrét Guðlaugsdóttir (Stafholti)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Margrét Guðlaugsdóttir (Stafholti)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 4: Lína 4:
Systkini Margrétar í Eyjum voru:

Systkini Margrétar í Eyjum voru:

1. [[Magnús Guðlaugsson (Fagurlyst)|Magnús Guðlaugsson]] formaður í [[Fagurlyst]], síðari maður [[Guðrún Þorkelsdóttir (Fagurlyst)|Guðrúnar Þorkelsdóttur]] húsfreyju; hann f. 28. maí 1863, drukknaði 20. maí 1901.

1. [[Magnús Guðlaugsson (Fagurlyst)|Magnús Guðlaugsson]] formaður í [[Fagurlyst]], síðari maður [[Guðrún Þorkelsdóttir (Fagurlyst)|Guðrúnar Þorkelsdóttur]] húsfreyju; hann f. 28. maí 1863, drukknaði 20. maí 1901.

2. [[Guðbjörg Guðlaugsdóttir (Jakobshúsi)|Guðbjörg Guðlaugsdóttir]]húsfreyja í [[Jakobshús]]i, f. 30. ágúst 1874, d. 17. febrúar 1965. M
2. [[Guðbjörg Guðlaugsdóttir (Jakobshúsi)|Guðbjörg Guðlaugsdóttir]] húsfreyja í [[Jakobshús]]i, f. 30. ágúst 1874, d. 17. febrúar 1965. M
enn hennar voru [[Sigurður Sigurðsson (Lambhúshól)|Sigurður Sigurðsson]] í [[Tún (hús)|Túni]] [[Jakob Tranberg (Jakobshúsi)|Jakob Tranberg]] og [[Einar Einarsson (Norðurgarði)|Einar Einarsson]] frá [[Norðurgarður|Norðurgarði]].

enn hennar voru [[Sigurður Sigurðsson (Lambhúshól)|Sigurður Sigurðsson]] í [[Tún (hús)|Túni]] [[Jakob Tranberg (Jakobshúsi)|Jakob Tranberg]] og [[Einar Einarsson (Norðurgarði)|Einar Einarsson]] frá [[Norðurgarður|Norðurgarði]].

Útgáfa síðunnar 23. október 2016 kl. 13:38

Margrét Guðlaugsdóttir húsfreyja í Krókatúni, Lambhúskoti og Vesturholtum u. Eyjafjöllum, síðar í Stafholti fæddist 13. júlí 1868 á Sperðli í V-Landeyjum og lést 23. desember 1937 í Brautarholti.
Foreldrar hennar voru Guðlaugur Jónsson bóndi, f. 15. júlí 1832 á Sperðli, d. 4. ágúst 1887, og kona hans Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 28. júlí 1830 í Króki, d. 11. febrúar 1910.

Systkini Margrétar í Eyjum voru:
1. Magnús Guðlaugsson formaður í Fagurlyst, síðari maður Guðrúnar Þorkelsdóttur húsfreyju; hann f. 28. maí 1863, drukknaði 20. maí 1901.
2. Guðbjörg Guðlaugsdóttir húsfreyja í Jakobshúsi, f. 30. ágúst 1874, d. 17. febrúar 1965. M enn hennar voru Sigurður Sigurðsson í Túni Jakob Tranberg og Einar Einarsson frá Norðurgarði.

Margrét var með foreldrum sínum á Sperðli í Landeyjum í frumbernsku, í Norðurhjáleigu þar 1880. Hún var vinnukona í Neðri-Dal u. V-Eyjafjöllum 1890, þar hjá Jóngeiri Jónssyni bónda og Gunnvöru Jónsdóttur konu hans. Jón Jóngeirsson var þar vinnumaður.
Þau Jón giftu sig 1892 og bjuggu í Krókatúni í fyrstu, í Lambhúskoti u. Eyjafjöllum 1899 og enn 1908, þá með fimm börnum sínum, bjuggu í Vesturholtum þar 1910 með 7 börnum, en Ingibergur var léttadrengur á Miðeyjarhólmi í A-Landeyjum. Þau voru enn í Vesturholtum 1920 með þremur börnum sínum.
Þau brugðu búi og fluttust til Eyja 1923 ásamt Ólafi syni sínum, bjuggu í Stafholti 1924 og enn 1930 og Margrét var hjá Júlíusi í Stafholti 1934.
Margrét lést 1937 í Brautarholti, en Jón lést 1940.

Maður Margrétar, (21. október 1892), var Jón Jóngeirsson bóndi, f. 10. ágúst 1865, d. 11. apríl 1940.
Börn þeirra í Eyjum:
1. Guðlaugur Júlíus Jónsson múrarameistari í Stafholti, f. 31. júlí 1895 í Krókatúni, d. 4. september 1978.
2. Ingibergur Jónsson sjómaður, verkamaður, f. 12. júlí 1897 í Krókatúni u. Eyjafjöllum, d. 15. apríl 1960.
3. Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Litlalandi, f. 17. maí 1899 í Lambhúskoti, d. 16. mars 1992.
4. Magnús Jónsson bóndi, verkamaður, f. 8. júlí 1901 í Lambhúskoti, d. 3. júlí 1986.
5. Sigurður Jónsson sjómaður, f. 28. júlí 1902 í Lambhúskoti, drukknaði 27. febrúar 1919, féll út af vb. Skuld.
6. Guðjón Jónsson útgerðarmaður, f. 3. nóvember 1905 í Lambhúskoti, d. 22. janúar 1965.
7. Ólafur Jónsson skipasmiður í Nýhöfn, f. 15. maí 1908 í Lambhúskoti, d. 12. júlí 1998.

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Íslendingabók.is.
• Manntöl.
• Prestþjónustubækur.
• Víkingslækjarætt – niðjatal Guðríðar Eyjólfsdóttur og Bjarna Halldórssonar hreppstjóra. Pétur Zophoníasson og fleiri. Skuggsjá 1983.

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.