„Jórunn Guðmundsdóttir (Norðurgarði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Jórunn Guðmundsdóttir''' húsfreyja í Norðurgarði fæddist 4. desember 1828 og lést 14. febrúar 1879.<br> Foreldrar hennar voru [[Guðmundur Eyjólfsson (No...)
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 19: Lína 19:
*[[Árni Árnason (símritari)|Árni Árnason]].
*[[Árni Árnason (símritari)|Árni Árnason]].
*Heimaslóð.
*Heimaslóð.
*[[Saga Vestmannaeyja]]. [[Sigfús M. Johnsen]]. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
*Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
*Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
*Manntöl.
*Manntöl.

Útgáfa síðunnar 4. maí 2013 kl. 21:04

Jórunn Guðmundsdóttir húsfreyja í Norðurgarði fæddist 4. desember 1828 og lést 14. febrúar 1879.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Eyjólfsson bóndi í Norðurgarði, f. 17. október 1790, d. 18. ágúst 1846, og kona hans Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 1798.

Jórunn var vinnukona í Nöjsomhed 1845, gift Símoni Jónssyni og húsfreyja í Norðurgarði 1850, gift Brynjólfi Halldórssyni og húsfreyja í Norðurgarði 1860 og 1870.

Jórunn var tvígift:
I. Fyrri maður hennar var Símon Jónsson bóndi í Norðurgarði 1850, f. 1822, drukknaði við Landeyjasand 1. október 1850.
II. Síðari maður var Brynjólfur Halldórsson bóndi í Norðurgarði, f. 11. nóvember 1824, d. 4. júní 1874.
Börn Jórunnar og Brynjólfs:
1. Margrét, f. 20. október 1852, d. 31. júlí 1937, kona Hannesar lóðs á Miðhúsum.
2. Rannveig, húsfreyja, f. 27. september 1853, d. 5. október 1922, giftist Magnúsi Pálssyni í Reykjavík.
3. Þórður, f. 1862. Líklega sá, sem fór til Vesturheims frá Akureyri 1887, trésmiður 24 ára.
4. Magnús Brynjólfsson, f. 17. desember 1864. Hann fór til Vesturheims, líklega 1887 og líklega sá, sem er 22 ára skósmiður og ætlaði til Milwaukee.
5. Salvör, f. 11. janúar 1866, d. 11. júlí 1900, húsfreyja í Reykjavík, giftist Ólafi Sveinssyni. Sonur þeirra var Kjartan Ólafsson, f. 17. september 1894, d. 3. ágúst 1960, yfirfiskimatsmaður í Húsavík, faðir Jóns verkalýðsforingja. Kjartan ólst upp hjá Margréti móðursystur sinni á Miðhúsum frá árinu 1898.
6. Guðbjörg, f. 2. apríl 1867, d. 25. apríl 1944, húsfreyja á Akureyri.
7. Halldór, sem varð blindur, f. 12. janúar 1873, d. 28. janúar 1948. Hann kvæntist Kristínu Vigfúsdóttur af Rangárvöllum, f. 2. september 1865, d. 5. janúar 1836. Þau bjuggu í Sjávargötu, síðar í Hafnarfirði.


Heimildir