Ritverk Árna Árnasonar/Magnús Brynjólfsson (Norðurgarði)
Kynning.
Magnús Brynjólfsson skósmiður frá Norðurgarði fæddist 17. desember 1864.
Foreldrar hans voru Brynjólfur Halldórsson bóndi, f. 11. nóvember 1825 í Skíðbakkahjáleigu í A-Landeyjum, d. 4. júní 1874, og kona hans Jórunn Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 4. desember 1828 í Norðurgarði, d. 14. febrúar 1879.
Systkini Magnúsar, sem komust upp voru:
1. Margrét, f. 20. október 1852, d. 31. júlí 1937, kona Hannesar lóðs á Miðhúsum.
2. Rannveig húsfreyja í Reykjavík f. 27. september 1857, d. 5. október 1922.
3. Þórður, f. 16. júní 1862. Líklega sá, sem fór til Vesturheims frá Akureyri 1887, trésmiður 24 ára.
4. Júíana Guðrún, f. 9. júlí 1863. Hún bjó á Akureyri 1930.
5. Salvör, f. 11. janúar 1866, d. 11. júlí 1900, húsfreyja í Reykjavík, giftist Ólafi Sveinssyni. Sonur þeirra var Kjartan Ólafsson, f. 17. september 1894, d. 3. ágúst 1960, yfirfiskimatsmaður í Húsavík, faðir Jóns verkalýðsforingja. Kjartan ólst upp hjá Margréti móðursystur sinni á Miðhúsum frá árinu 1898.
6. Guðbjörg, f. 2. apríl 1867, d. 25. apríl 1944, búsett í Reykjavík.
7. Halldór sjómaður, varð blindur, f. 12. janúar 1873, d. 28. janúar 1948. Hann kvæntist Kristínu Vigfúsdóttur af Rangárvöllum, f. 2. september 1865, d. 5. janúar 1836. Þau bjuggu í Sjávargötu, síðar í Hafnarfirði.
Magnús var með fjölskyldu sinni uns faðir hans lést, en þá var hann tæpra 10 ára. Hann var tökubarn í Nýjabæ í lok árs 1874-1879, léttadrengur þar 1880-1881, vinnudrengur þar 1882, vinnumaður 1883-1884.
Hann fluttist til Reykjavíkur 1885, nam skósmíðar. Þar gerði hann Kristjönu Margréti barn og fór af landi brott til Milwaukee 1887, áður en barnið fæddist. Við skírn Jóns Pálma er Magnús skráður fyrr skósmíðalærlingur í Reykjavík, „nú farinn“.
Barnsmóðir hans var Kristjana Margrét Marisdóttir, f. 14. nóvember 1853.
Barn þeirra var
1. Jón Pálmi Magnússon, f. 5. september 1887, d. 19. september 1887.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.
Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.
Magnús þessi fór snemma til Ameríku og er erfitt að fá upplýsingar um hann¹). Hann var mikið við fuglaveiðar og þótti mikill veiðimaður, þótt mest kvæði að honum á tímabili gömlu veiðiaðferðanna.
¹) Samkv. Vesturfaraskrá fór maður með þessu nafni og á þessum aldri til Milwaukee í Bandaríkjunum 1887, 22 ára skósmiður, en brottfararstaður er ekki nefndur). (VÞÞ).
Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.