Jón Þorgeirsson (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. maí 2013 kl. 15:27 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. maí 2013 kl. 15:27 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jón Þorgeirsson''' bóndi í Mýrdal, síðar bóndi og hagyrðingur á Oddsstöðum, fæddist 1808 á Rauðhálsi í Mýrdal og lést 6. júní 1866 í [[Vanangur|V...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Þorgeirsson bóndi í Mýrdal, síðar bóndi og hagyrðingur á Oddsstöðum, fæddist 1808 á Rauðhálsi í Mýrdal og lést 6. júní 1866 í Vanangri.
Faðir hans var Þorgeir bóndi á Ketilsstöðum í Mýrdal, f. 1768, d. 1. maí 1834 á Dyrhólum, Eiríksson bónda í Dyrhólahverfi og Ketilsstöðum, f. 1736, d. 2. október 1814, Sigurðssonar, f. (1710), Arnbjörnssonar og ókunnrar móður Eiríks.
Móðir Þorgeirs á Ketilsstöðum og kona Eiríks var Björg húsfreyja, f. 1734, d. 22. september 1825 á Dýrhólum, Sigurðardóttir.
Móðir Jóns Þorgeirssonar og barnsmóðir Þorgeirs var Ástríður vinnukona víða u. Eyjafjöllum, síðar hjá Jóni syni sínum á Oddsstöðum, f. 1782, (nefnd Ástríður Jónsdóttir á mt. 1850), en var Einarsdóttir bónda í Ystabæliskoti u. Eyjafjöllum, f. 1759, d. 23. desember 1804, Vigfússonar, og konu Einars Vigfússonar, Sesselju húsfreyju, f. 1745 á Núpi u. Eyjafjöllum, d. 8. september 1825, Tómasdóttur, og móður Sesselju, Vigdísar, f. 1721, Jónsdóttur.

Jón var fósturbarn á Presthúsum í Mýrdal 1816, fósturbarn í Fjósum þar við fermingu 1823, vinnumaður á Skagnesi í Mýrdal 1825.
Hann var búsettur í Kastala 1837 með Elínu fyrri konu sinni, sjómaður og húsbóndi á Oddsstöðum 1845 og enn 1860.
Eftir Jón eru formannavísur og Suðureyjarbragur og bragur um Magnús Kristjánsson mormóna, er hann tók þá trú ( Á.Á)
Jón þótti afburða bjargveiðimaður samkv. Á.Á. Hafði hann forystu í uppgöngu í Súlnasker áratugum saman. Hann hrapaði eitt sinn í Vestururðinni í Elliðaey og varð haltur eftir það, kallaður „Jón halti“.

Jón var tvígiftur:
I. Fyrri kona hans var Elín Einarsdóttir húsfreyja, f. 1797 í Eyjum, d. 6. júní 1854.
Þau voru barnlaus.
II. Síðari kona hans var Margrét Halldórsdóttir húsfreyja, f. 16. janúar 1832 í Steinasókn u. Eyjafjöllum, d. 15. febrúar 1919.
Börn Jóns og Margrétar:
1. Eiríkur Jónsson, f. 1855.
2. Elín Jónsdóttir, f. 1856, vinnukona hjá Agnesi Aagaard sýslumannsfrú, síðar húsfreyja á Helluvaði á Rangárvöllum, móðir Ingunnar í Skuld og amma Skuldarsystkina.
3. Jón Jónsson Vestmann, f. 10. mars 1860. Hann fluttist til Austfjarða, bjó í Mjóafirði og á Seyðisfirði. Hann fór til Vesturheims 1901 frá Sörlastöðum í Seyðisfirði, ásamt konu sinni Soffíu Hallgrímsdóttur og syni þeirra Jóni Vestmann yngri, eins árs.
4. Eyjólfur Jónsson, f. 18. ágúst 1862. Hann var alinn upp hjá Jóni og Sesselju í Gvendarhúsi, en varð bóndi á Vesturhúsum, kvæntur Valgerði Eiríksdóttur.
III. Barn Jóns með Sigríði Ámundadóttur, f. 1798:
5. Ástríður Jónsdóttir húsfreyja á Löndum og Vilborgarstöðum, f. 28. júlí 1825 í Mýrdal, d. 3. janúar 1904, kona Þórðar Einarssonar sjávarbónda á Viðborgarstöðum, f. 1822, d. 1860.


Heimildir