Halldóra Helgadóttir (Sólvangi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. janúar 2024 kl. 15:27 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. janúar 2024 kl. 15:27 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Halldóra Helgadóttir frá Sólvangi við Kirkjuveg 29, lyfjatæknir, afgreiðslumaður í Apótekinu fæddist 16. ágúst 1922 í Reykjavík og lést 1. maí 1993.
Foreldrar hennar voru Helgi Bjarni Jónsson bóndi smiður á Jarðlangsstöðum og Glæsivöllum í Miðdölum, f. 27. febrúar 1881, d. 13. janúar 1943, og kona hans Jósefína Sigurðardóttir húsfreyja, vökukona á Sjúkrahúsinu, síðar fiskiðnaðarkona, f. 19. apríl 1892, d. 25. nóvember 1971.

Börn Jósefínu og Helga Bjarna:
1. Guðrún Helgadóttir hjúkrunarfræðingur í Eyjum og Hveragerði, f. 11. júní 1914, d. 14. júní 2000. Maður hennar Ársæll Karlsson vélstjóri.
2. Kristín Helgadóttir húsfreyja, f. 6. nóvember 1918, d. 10. júní 2005. Maður hennar Haraldur Sigurðsson vélstjóri, vélvirki.
3. Hólmfríður Helgadóttir húsfreyja, verkakona í Reykjavík, f. 7. mars 1921, d. 8. september 2009. Maður hennar Kristján Fr. Kristjánsson verslunarmaður.
4. Halldóra Helgadóttir lyfjatæknir, verslunarmaður, f. 16. ágúst 1922, d. 1. maí 1993. Barnsfaðir hennar Haraldur Steingrímsson rafvirki.
5. Þrúður Helgadóttir húsfreyja á Hellu, Rang., f. 26. júlí 1925, d. 18. nóvember 2005. Maður hennar Óskar Þorsteinn Einarsson húsasmiður, verkstjóri.

Halldóra var með foreldrum sínum, fluttist með þeim til Eyja nýfædd 1922.
Hún nam í Kvöldskóla iðnaðarmann og síðar lærði hún lyfjatækni í Reykjavík, lauk námi 1975.
Halldóra vann við afgreiðslu í Apótekinu og var af og til viðurkenndur staðgengill lyfsalans. Hún vann í Holtsapóteki í Reykjavík frá 1968.
Hún flutti til Reykjavíkur 1968.
Halldóra eignaðist barn með Haraldi 1950.
Hún lést 1993.

I. Barnsfaðir Halldóru var Haraldur Steingrímsson rafvirki, f. 7. september 1923, d. 8. september 1989.
Barn þeirra:
1. Fríða Sigrún Haraldsdóttir kennari, f. 7. mars 1950. Maður hennar Sigurbjörn Helgason málari, myndlistarkennari, f. 19. mars 1949.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.