Kristín Helgadóttir (Sólvangi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Kristín Helgadóttir.

Kristín Helgadóttir húsfreyja, saumakona fæddist 6. nóvember 1918 á Vatni í Haukadal í Dalas. og lést 10. júní 2005 í Hraunbúðum.
Foreldrar hennar voru Helgi Bjarni Jónsson bóndi smiður á Jarðlangsstöðum á Mýrum og Glæsivöllum í Miðdölum, f. 27. febrúar 1881, d. 13. janúar 1943, og kona hans Jósefína Sigurðardóttir húsfreyja, vökukona á Sjúkrahúsinu, fiskiðnaðarkona, f. 19. apríl 1892, d. 25. nóvember 1971.

Börn Jósefínu og Helga Bjarna:
1. Guðrún Helgadóttir hjúkrunarfræðingur í Eyjum og Hveragerði, f. 11. júní 1914, d. 14. júní 2000. Maður hennar Ársæll Karlsson vélstjóri.
2. Kristín Helgadóttir húsfreyja, f. 6. nóvember 1918, d. 10. júní 2005. Maður hennar Haraldur Sigurðsson vélvirki.
3. Hólmfríður Helgadóttir húsfreyja, verkakona í Reykjavík, f. 7. mars 1921, d. 8. september 2009. Maður hennar Kristján Fr. Kristjánsson verslunarmaður.
4. Halldóra Helgadóttir lyfjatæknir, verslunarmaður, f. 16. ágúst 1922, d. 1. maí 1993. Barnsfaðir hennar Haraldur Steingrímsson rafvirki.
5. Þrúður Helgadóttir húsfreyja á Hellu, Rang., f. 26. júlí 1925, d. 18. nóvember 2005. Maður hennar Óskar Þorsteinn Einarsson húsasmiður.

Kristín var með foreldrum sínum í æsku, flutti með þeim til Eyja 1922.
Hún vann ýmis störf, var lengst saumakona á Sjúkrahúsinu.
Hún var virk í félagsstarfi í Verkakvennafélaginu Snót.
Þau Haraldur giftu sig 1940, eignuðust ekki börn saman, en ólu upp fósturbarn. Þau bjuggu á Rauðafelli við Vestmannabraut 58b, síðar á Haukfelli við Hvítingaveg 2.
Haraldur lést 2004 og Kristín 2005.

I. Maður Kristínar, (19. október 1940), var Haraldur Sigurðsson vélstjóri, vélvirki frá Ey í V.- Landeyjum, f. 23. nóvember 1910, d. 10. febrúar 2004.
Fósturbarn þeirra:
1. Helgi Kristinsson sjómaður, stýrimaður á Þráni NK, f. 12. nóvember 1945, fórst 5. nóvember 1968. Barnsmóðir hans Valgerd Bagley Eiríksson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.