„Finnbogi Finnbogason“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Finnbogi Finnbogason.jpg|thumb|300px|Finnbogi í Vallartúni.]]
[[Mynd:Finnbogi Finnbogason.jpg|thumb|300px|Finnbogi í Vallartúni.]]
[[Mynd:KG-mannamyndir 10154.jpg|thumb|300px|Börn Finnboga og Sesselju]]
'''Finnbogi Finnbogason''', [[Vallartún]]i, fæddist að [[Pétursborg]] í Vestmannaeyjum þann 11. maí 1891 og lést 3. mars 1979. Foreldrar hans voru [[Finnbogi Björnsson]] og [[Rósa Eyjólfsdóttir (Norðurgarði)|Rósa Eyjólfsdóttir]]. Hann var næst yngstur fimm sona þeirra. Bræður hans voru [[Björn Finnbogason|Björn Þórarinn]], [[Ágúst Kristján Finnbogason|Ágúst Kristján]], [[Stefán Finnbogason|Stefán]] og [[Árni Finnbogason|Árni Sigurjón]]. Eftir lát móður þeirra giftist faðir þeirra aftur og eignaðist tvo syni, annar þeirra [[Guðni Finnbogason|Guðni]].

Útgáfa síðunnar 24. júní 2011 kl. 09:17

Finnbogi í Vallartúni.
Börn Finnboga og Sesselju

Finnbogi Finnbogason, Vallartúni, fæddist að Pétursborg í Vestmannaeyjum þann 11. maí 1891 og lést 3. mars 1979. Foreldrar hans voru Finnbogi Björnsson og Rósa Eyjólfsdóttir. Hann var næst yngstur fimm sona þeirra. Bræður hans voru Björn Þórarinn, Ágúst Kristján, Stefán og Árni Sigurjón. Eftir lát móður þeirra giftist faðir þeirra aftur og eignaðist tvo syni, annar þeirra Guðni.

Kona Finnboga var Sesselja Einarsdóttir. Sonur þeirra var Ólafur Tryggvi.

Finnbogi byrjaði sjómennsku ungur á Neptúnusi I og var hjá honum margar vertíðir. Formennsku byrjar Finnbogi árið 1915 á Stefni en síðar var hann með Láru, Ásdísi og Þór til ársloka 1923. Eftir það var hann formaður fyrir Ólaf Auðunsson útgerðarmann með hina ýmsu báta fram til 1940.

Benedikt Sæmundsson vélstjóri frá Fagrafelli í Vestmannaeyjum samdi kvæði um Finnboga. Við birtum hér fyrstu tvö erindin af sex:

Þú varst ekta Eyjamaður
allt þitt líf og starf var þar
fórst á sjóinn, ferðahraður,
formannsbragur á þér var.
Um það var víst alltaf friður
að þú gengir þessa slóð
selta hafs og sjávarniður
samofið í hold og blóð.

Mikil reisn var ávallt yfir
öllum þínum formannsbrag
í huga mínum lengi lifir
ljósið um það gæfu dag.
er eg kom, þá ungur maður,
á þinn fund, með bágan hag,
víst ég man, hve varð ég lgaður,
því, vel þú tókst mér, þennan dag.

Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1999.