Guðni Finnbogason (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Guðni Finnbogason)
Fara í flakk Fara í leit
Guðni

Guðni Finnbogason, Norðurgarði, fæddist í Vestmannaeyjum 10. október 1909 og lést 2. júlí 1962. Foreldrar hans voru Finnbogi Björnsson og Margrét Jónsdóttir, seinni kona Finnboga.

Eiginkona Guðna var Guðrún Ágústa Sigurjónsdóttir og eignuðust þau þrjú börn, Ólaf, Helga Þórarinn og Ásu. Þau bjuggu á föðurgarði Guðna, Norðurgarði.

Formennsku hóf Guðni árið 1931 með Hansínu, síðar var hann vélamaður á Veigu en varð að hætta sökum heilsubrests. Síðustu ár sín vann hann við smíðar hjá Ísfélaginu. Hann lést 52 ára gamall, eftir mikil veikindi.

Guðni var góður maður og umhyggjusamur og góður heimilisfaðir. Hann aðstoðaði foreldra sína í elli þeirra og létust þau bæði á Norðurgarði.

Myndir



Heimildir

  • Friðfinnur Finnsson. Guðni Finnbogason, minningargrein. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1964.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.