Blik 1973/Myndasyrpa

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. september 2015 kl. 20:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. september 2015 kl. 20:44 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit



Myndasyrpa
(myndir, dreifðar í ritinu, en safnað saman á þessa síðu (Heimaslóð.is))


ctr
ctr


Efri myndin: Elzta gerð opnu skipanna í Vestmannaeyjum. Neðri myndin: Færeyska lag opnu skipanna (1901-1906).


ctr

Kunnir Eyjagarpar frá fyrstu áratugum vélbátaútvegsins í Vestmannaeyjum: Hannes hafnsögumaður Jónsson (til vinstri, í starfi 85 ára) og Valdimar Bjarnason, útgerðarmaður og formaður.

Í 29. árgangi Bliks, bls. 86, birtum við þessa mynd. Þá skorti okkur skýringar við hana. Nú eru þœr fengnar.
Frá vinstri:
1. Jón Jónsson frá Ólafshúsum í Eyjum.
2. Kristján Finnbogason frá Norðurgarði (fór til Ameríku).
3. Þorsteinn Arnarson frá Kálfatjörn.
4. Ágúst Jónsson, Varmahlíð í Eyjum.
Fyrstu vélbátarnir dönsku 1905-1910.


ctr


Séra Páll Jónsson, sóknarprestur og skáld á Kirkjubæ í Vestmannaeyjum, settist á staðinn árið 1822. Þá flutti hann og madd. Guðrún Jónsdóttir, kona hans, í þessi húsakynni.
Til að skýra betur myndina vegna óskýrleika eftir flutning hennar (Heimaslóð.is):
Efst: „Kirkjubær, prestssetrið 1822, M 1:100“, Næst: „Suðurstafnar“. Þar til hægri: „Vestur“. Mynd undir suðurstöfnum: „Loftið“. Til hægri við Loftið er „Grunnmynd“. Fyrir miðju og neðar er „Grunnmynd“. Þar er lengst til vinstri „Göng“ og þar inn af „Fjós“. Næst er „Eldhús“ og þar inn af er „Geymsla“ . Þá er „Skáli“, þá „Göng“ og „Búr“ og lengst til hægri er „Baðstofa“.
Undir myndunum stendur: „Teikning samkvæmt lýsingu á húsunum í Sögu Vestmannaeyja á bls. 194 – 1. bindi. Höfundur Sigfús M. Johnsen.

Vestmannaeyjum 1968
Óskar Kárason

ctr


Landlyst, byggð 1847 og 1848. Þar sem nú Kornloftið er horfið undir hraun, er þetta hús nœst elzta bygging í Eyjum, næst Landakirkju.
Bœjarstjórn Vestmannaeyja keypti hús þetta á s.l. ári. Þau húsakaup eru ein sönnun þess, hve ráðandi menn í Eyjum hafa nú orðið góðan skilning á sögulegum verðmœtum kaupstaðarins.
Sparisjóður Vestmannaeyja lánaði bœnum andvirði hússins.
Í þessu húsi ráku Danir „Stiftelsið“ fræga, fœðingarstofnunina, þar sem Schleisner lœknir rannsakaði orsakir ginklofans, sem deyddi nálega 70% af öllum börnum, sem fæddust í Vestmannaeyjum á 18. og fyrra helmingi 19. aldarinnar.
Aðstoðaraflið mikla og góða við rannsóknir þessar var Solveig ljósmóðir Pálsdóttir prests og skálds Jónssonar, en hún var sem kunnugt er amma Ásgeirs heitins forseta og þeirra systkina. — Þau hjón, Solveig ljósmóðir og Matthías Markússon „snikkari“, byggðu helming hússins 1848 og var þar íbúð þeirra. Fæðingarstofnunin var þá starfrækt í danska endanum, vestari hluta þess.

ctr


„Pallakrær“ í Vestmannaeyjum. Aðgerðarhús Eyjabúa fram á fjórða áratug aldarinnar.



ctr


Gömul mynd af þekktum Eyjamönnum: Frá vinstri: Árni Sigurðsson (frá Nýborg) smiðs og útvegsbónda Sveinssonar, Engilbert Gíslason, síðar kunnur málarameistari og listmálari. - Sitjandi: Þórarinn Gíslason frá Lundi. - Myndin mun vera um 80 ára gömul. (leiðr., sjá Blik 1974, bls. 175).